USA CUP

13. - 20. júlí 2026 

Mjög vinsælt mót

USA CUP - Knattspyrnumót
 
USA CUP 2026
Knattspyrnumót fyrir stráka og stelpur!
 
Mótsdagar 2026:
14. - 19. júlí
Ferðadagar:
12. - 19. júlí og 13. júlí - 20. júlí
 
USA Cup í Minneapolis:
  • Einu sinni á ævinni ferð.
  • Toppmót, frábærar aðstæður, yfir 50 góðir vellir í National Sport Center í Blaine, 30 mín. frá MSP-flugvelli.
Gisting:
  • Heimavist háskóla (”dorm”) og hótel síðustu nóttina.
Flogið með beinu flugi Icelandair
Keflavík – Minneapolis – Keflavik
 
Innifalið í verði:
  • Flug, flugv.skattar og gjöld, háskólagisting (6 nætur) + ein nótt á hóteli eftir mót,
  • 2 máltíðir mótsdagana (nema kvöldmáltíð á setningarathöfninni en þá er hægt að kaupa mat á mótssvæðinu)
  • mótsgjald per lið
  • þátttökugjald per leikmann
 
Á milli leikja og á kvöldin er mikil dagskrá í gangi á mótssvæðinu.
Einnig eru stöðugar ferðir alla dagana í “Mall of America”, stærstu “kringlu” Bandaríkjanna, hægt að heimsækja vatnagarð og ótal aðrar dægrastyttingar eru í boði. Þá hefur verið þjónusta fyrir leikmenn sem hafa áhuga á að fá skólastyrk við bandaríska háskóla.
 
Bókið tímanlega 
 
Dæmi um félög sem sent hafa lið á USA Cup s.l. ár:
Víkingur, Njarðvík, ÍA, Breiðablik, Fylkir, Haukar, Keflavík, Selfoss, Stjarnan, Fram, Valur, Fjölnir, Grótta/KR og mörg fleiri.
Fyrirspurn um æfinga- og keppnisferð