Algengar spurningar

Hvernig bóka ég ferð?

Það er einfaldast að bóka ferðina á vefnum okkar.

Einnig er hægt að senda okkur póst á fyrirspurn@visitor.is  eða í síma 578 -9888. Einnig er hægt að senda fyrirspurn í gegnum spjallið á vefnum hjá okkur.

Hvernig get ég greitt fyrir ferðina?

Hægt er að greiða ferðina með debet, kreditkorti, millifærslu, Netgiró eða Pei. Netgiró og Pei bjóða upp á að skipta greiðslum. Ef viðskiptavinur vill gera það þá er það gert inn á vef Netgiró eða Pei. Við bókun er greitt 40.000 kr. í staðfestingargjald á mann ef 8 vikur eða lengra er í brottför. Ef minna en 8 vikur er í brottför þarf að fullgreiða ferðina. Staðfestingargjald er alltaf óendurkræft.

Ferðagögn

Við greiðslu hópferða er send kvittun fyrir þeirri greiðslu sem innt var af hendi. Fullnaðargreiðslu er krafist 8-10 vikum fyrir brottfarardag (fer eftir tegund ferðar) og um leið og greiðsla berst eru send út ferðagögn (bókunarnúmer flugs og voucher fyrir hótel) ásamt ferðalýsingu og þeim upplýsingum sem þykja nauðsynlegar farþegum áður en ferð hefst.

Ferðagögn sólar- og borgarferða. Þegar að bókun hefur verið staðfest fær viðskiptavinur senda bókunarstaðfestingu á það netfang sem gefið var upp í bókuninni. Þetta eru fullgild ferðagögn sem notuð eru við innritun á flugi og við innritun á hóteli.

Hvernig bóka ég tösku eða auka farangur

Innritaður farangur er ekki alltaf innifalinn í pakkaferðum Visitor nema að það komi sérstaklega fram.

Þegar sólar- eða borgarferð er bókuð á vefnum kemur upp valmöguleiki í bókunarferlinu hvort farþegi vilja bóka innritaðan farangur eða auka handfarangur, ef hann er ekki innifalinn í flugfargjaldinu.

Innifalið er handfarangur hjá flugfélögum og mjög misjafnt eftir flugfélögum hver farangursheimildin er. 

Icelandair: Farangursheimild er 23 kg innritaður farangur og 10 kg handfarangurstaska sem má ekki vera stærri en 55x40x20 cm. Má fara upp í farangurshólf.

Wizzair: Farangursheimild er bakpoki eða taska 40x30x20 cm og þarf að komast undir sætið. 

Easy Jet: Farangursheimild er bakpoki eða taska 45x36x20 cm og þarfa að komast undir sætið. 

Air Baltic: Farangursheimild er 23kg innrituð taska og  handfarangurstaska 8 kg sem ekki má vera stærri en 55x40x23 cm.

Hvernig bóka ég sæti ?

Þegar ferð er bókuð á vefnum er misjafnt eftir flugfélögum hvort boðið sé upp á að bóka sæti  í bókunarferlinu og verð er misjafnt eftir flugfélagi. Til að bóka sæti er einfaldast að fara á vef flugfélagsins og ganga frá sætabókun þar. Starfsfólk Visitor getur líka aðstoðað með sætabókun.
Í öllum tilfellum er greitt fyrir sætabókanir.

Innritun fyrir flug

Flest flugfélög bjóða upp á að innrita sig á heimasíðu félagsins áður en mætt er upp á flugvöll. Það er ekki nauðsynlegt en sum flugfélög rukka farþega upp á flugvelli ef ekki er búið að innrita sig á vef félagsins. 

Icelandair:  Innritun fyrir flug opnar 24 klst fyrir brottför. Farið er inn á þessa síðu til að innrita sig í flug. Ekki nauðsynlegt en mælum með að farþegar innrita sig í flug hafi þeir tök á því.

https://www.icelandair.com/is/

Wizzair: Innritun fyrir flug hjá Wizzair opnar 30 dögum fyrir brottför. ATH Wizzair rukkar farþega upp á flugvelli ef þeir eru ekki búnir að innrita sig á vef félagsins og er engar undantekningar eru gerðar á því hjá þeim. Þessi upphæð er 30-40 EUR á mann. Það er því mjög mikilvægt að vera búið að innrita sig í flug til að komast hjá þessum kostnaði. Farið er inn á þessa síðu til að innrita sig í flugið og valið er efst upp í hægra horni Check-in & bookings. 

https://wizzair.com/en-gb/

Easy Jet: Innritun fyrir flug hjá Easy Jet opnar 30 dögum fyrir brottför. Farið er inn á þessa síðu og valið efst í horninu hægra megin check in. 

https://www.easyjet.com/en

AirBaltic: Innritun fyrir flug hjá AirBaltic 24 klst fyrir áætlaða brottför.

 ATH AirBaltic rukkar farþega upp á flugvelli ef þeir eru ekki búnir að innrita sig á vef félagsins og eru engar undantekningar gerðar á því. Það er því mjög mikilvægt að að vera búið að innrita sig fyrir flugið til að komast hjá þessum kostnaði. Farið er inn á þessa síðu til að innrita sig í flugið og vinstra megin á síðunni er valið Check-in

https://www.airbaltic.com/en-ZZ/index

Breytingar á sólar- og borgarferðum

Um leið og bókun hefur átt sér stað og hún er greidd að hluta til eða að fullu er flugmiðinn óendurkræfur. Ekki er hægt að endurgreiða útgefinn farseðil, en farseðill er gefinn út um leið og viðskiptavinur kaupir og greiðir að hluta til eða fullgreiðir ferðina. Í einhverjum tilfellum er möguleiki að breyta farmiða. En það fer allt eftir því hvaða tegund af fargjaldi var upphaflega bókað. Ef hægt er að breyta flugmiða þá er breytingargjald lágmark 7900 kr. fyrir hvern farþega í bókun. Ofan á það leggst breytingargjald flugfélagsins og mögulegur fargjaldamismunur.

Visitor kaupir fargjaldið af viðkomandi flugfélagi um leið og bókun á sér stað, og aldrei er unnt að breyta bókaðri ferð í tilboðsferð. 

Breytingar á skipulögðum hópferðum.  

Ef hægt er að breyta flugmiða þá er breytingargjald 19.900 kr. á hvern farþega auk fargjaldamismunar sé hann til staðar.

Breytingar á hóteli

Ef breyta skal hóteli þarf að skoða hvert tilfelli fyrir sig hvort breytingar séu leyfilegar. Breytingargjald er 7.900 kr. fyrir bókun. Ef hægt er að breyta hóteli þá er greitt fyrir verðmismun ef hótel er dýrara en það sem upphaflega var bókað.

Börn

Börn sem eru yngri en 2 ára fá ekki úthlutað sæti um borð í flugvélinni.

Mun flugáætlun standast?

Brottfarar- og flugtímar eru ætíð áætlaðir og háðir breytingum vegna veðurs, af tæknilegum, eða öðrum óviðráðanlegum orsökum. Visitor ber hvorki ábyrgð né  er skaðabótaskylt ef breytingar verða á flugi vegna þessa.  Visitor getur ekki borið ábyrgð á ófyrirsjáanlegum aðstæðum, sem ferðaskrifstofan fær engu um ráðið og hefði ekki getað komið í veg fyrir afleiðingar þeirra.

Asktur til og frá flugvelli

Akstur til og frá flugvelli er ekki innifalinn í sólar- og borgarferðum.

Visitor getur boðið upp á akstur til og frá flugvelli í gengum samstarfsaðila okkar Welcome Pickups.

Hægt er að bóka akstur hér.

Skemmdur eða týndur farangur

Visitor ber ekki ábyrgð á týndum eða skemmdum sem kunna að verða á farangri í flugi. Verði skemmdir á farangri í flugvél ber farþega að fá skriflega skýrslu hjá þjónustuaðila flugfélagsins á viðkomandi flugvelli. Flugfélagið greiðir farþega bætur fyrir skemmdan farangur samkvæmt alþjóðlegum reglum og skulu bæturnar sóttar þangað. Hafi farþegi ekki látið gera tjónaskýrslu er ekki hægt að fá farangur bættan. Visitor ber ekki ábyrgð á ef farangur tapast eða að hann berst farþega seint.

Fæði á hótelum

Hálft fæði - Half board er morgunverður og kvöldverður. Á sumum hótelum er hægt að skipta út kvöldverð í staðinn fyrir hádegisverð. Engir drykkir eru innifaldir í hálfu fæði.  

Fullt fæði - Full board er morgunverður, hádegisverður og kvöldverður. Engir drykkir eru innifaldir í fullu fæði.  

Allt innifalið - All inclusive er morgunverður, hádegisverður og kvöldverður. Einnig er innifalið létt snarl yfir daginn sem er misjafnt eftir hótelum hvað er í boði hverju sinni. Einnig eru innifaldir drykkir. Þetta eru innlendir drykkir og áfengir innlendir drykkir. Hafa ber í huga varðandi drykkina að listinn er ekki tæmandi yfir það sem er í boði. 

Fararstjórn

Í öllum hópferðum hjá Visitor eins og fótbolta-tónleika- og sérferðum er farastjóri með í för.

Í sólar- og borgarferðum er ekki farastjórn og farþegar á eigin vegum.

Vegabréf

Íslenskir ríkisborgarar þurfa alltaf að hafa vegabréf meðferðis þegar ferðast er til og frá Íslandi þar sem vegabréf eru einu gildu íslensku ferðaskilríkin. Athugið að framlengd vegabréf teljast ekki lengur gild ferðaskilríki. Þeir sem hyggjast ferðast utan EES verða að hafa vegabréf sem gilda í a.m.k. 6 mánuði frá áætluðum ferðalokum. Rétt er að kynna sér hvaða kröfur er gerðar í þeim ríkjum sem heimsótt eru. Sjá nánari upplýsingar um vegabréf á vef utanríkisráðuneytisins. Koma upp pop up gluggar hér.

 Vegabréf og áritanir
Upplýsingar um áritanir er á heimasíðu Útlendingaeftirlitsins.
https://island.is/flokkur/vegabref-ferdalog-og-buseta-erlendis

Upplýsingar um vegabréf eru á heimasíðu Þjóðskrár.
https://www.skra.is/folk/vegabref-og-onnur-skilriki/vegabref/

Bretland ETA ferðaleyfi

Allir sem eru á leið til Bretlands þurfa að sækja um rafrænt ferðaleyfi (ETA, Electronic Travel Authorisation) áður en þeir ferðast. Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ETA til að komast inn í Bretland.

Ríkisborgarar Schengen svæðisins þurfa að hafa vegabréf eða önnur viðurkennd skilríki með í för. Skilríkin þurfa að vera í gildi allan dvalartímann í landinu. Vegabréfsáritun er óþörf.
Við mælum með að fólk sæki UK ETA appið og klári umsóknina og greiðsluna þar í gegn.
Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Ekki er hægt að fá gjaldið endurgreitt eftir að sótt er um.
Áður en þú byrjar umsókn
Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:
Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu. 

Bandaríkin  

Allir farþegar á leið til Bandaríkjanna þurfa að sækja um rafrænt ferðaleyfi ESTA.

ESTA stendur fyrir Electronic System for Travel Authorization. Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ESTA til að komast inn til Bandaríkjanna.

Hæg er að sækja um ESTA hér.

Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Áður en þú byrjar umsókn
Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:
Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu. 

Forfallatrygging/Sjálfsábyrgð

Ferðaskrifstofan ráðleggur öllum sínum farþegum að verða sér út um ferðatryggingu hjá tryggingafélagi. Visitor ferðaskrifstofa selur ekki forfallatryggingar.

Ferðamannaskattur

Nær undantekningalaust þarf að greiða ferðamannaskatt á öllum áfangastöðum. Þetta er iðulega alltaf innheimt af hótelum.