ETA rafræn ferðaheimild til UK
Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ETA til að komast inn til Bretlands.
Athugið að Bretland hefur sett fram skilyrði um að allir ferðamenn sem þurfa ekki vegabréfsáritun, verða að framvísa rafrænni ferðaheimild (ETA).
Ríkisborgarar Schengen svæðisins þurfa að hafa vegabréf eða önnur viðurkennd skilríki með í för. Skilríkin þurfa að vera í gildi allan dvalartímann í landinu.
Vegabréfsáritun er óþörf.
Við mælum með að fólk sæki UK ETA appið og klári umsóknina og greiðsluna þar í gegn.
Kostnaður
Greiða þarf fyrir heimildina samkvæmt gjaldskrá breska utanríkisráðuneytisins.
Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Ekki er hægt að fá gjaldið endurgreitt eftir að sótt er um.
Áður en þú byrjar umsókn
Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:
Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu.
Greiðslukort.
Þú verður beðin(n) um að hlaða upp eða taka mynd af:
Vegabréfinu.
Andlitsmynd af þeim sem sótt er um fyrir.
Þú þarft ekki að slá inn ferðaupplýsingar þínar.
ESTA–ferðaheimild til Bandaríkjanna
Allir farþegar sem ferðast til Bandaríkjanna skv. undanþágum frá vegabréfsáritun (VWP) verða að hafa svokallaða ESTA–ferðaheimild.
Hún gerir farþegum kleift að ferðast til Bandaríkjanna og dvelja þar skemur en í 90 daga án vegabréfsáritunar.
Farþegar verða að afla sér ESTA-heimildar með minnst 72 klst. fyrirvara í gegnum þar til gerða vefsíðu bandarískra yfirvalda.
Greiða þarf fyrir heimildina samkvæmt gjaldskrá bandaríska landamæraeftirlitsins.
Athugið að ESTA–heimild er ekki það sama og vegabréfsáritun.