Visitor hefst árið 2008
Visitor var stofnað af Þorbjörgu Sigurðardóttur (Obbý) í nóvember 2008. Til að byrja með var fyrirtækið eingöngu með ferðabókanir fyrir starfsfólk stofnana og fyrirtækja. Árið 2018 gekk eiginmaður Þorbjargar til liðs við Visitor og stofnaði hópadeild fyrirtækisins. Hópadeild Vistor er öflug stoðdeild innan fyrirtækisins sem býður upp á vandaðar árshátíðarferðir fyrir stór og smá fyrirtæki. Við sérhæfum okkur í endurmenntunarferðum fyrir kennara, leikskólakennara og aðar stéttir sem eiga rétt á styrk frá stéttarfélögum. Þessar ferðir hafa verið mjög vinsælar. Viðburðir á fótboltaleiki og tónleika eru vinsælar hópferðir hjá Visitor. Æfinga- og keppnisferðir eru vandaðar ferðir fyrir íþróttahópa, við bjóðum uppá mörg stór mót fyrir yngri flokka ásamt æfingaferðum.
Í byrjun árs 2026 innleiðir Vistior nýtt bókunarkerfi og hefur sölu á sólarlanda-og borgarferðum. Með samningum við öll helstu flugfélög getur Visitor boðið upp á ferðir til nánst hvaða áfangastaðar sem er. Með öflugri leitar- og bókunarvél má finna hagstæðasta flug- og hótelverðið hverju sinni en Visitor er með yfir tvær milljónir hótela í sölu.
Í dag er Visitor ferðaskrifstofa með 6 starfsmenn í fullu starfi auk verktaka. Visitor er ein af mjög fáum ferðaskrifstofum á Íslandi með fullt útgáfuleyfi farseðla frá IATA. Það þýðir milliliðalaust samband við öll flugfélög heims, án þjónustugjalda bókunarsíðna og styttra og öruggara samband ef breyta þarf farseðlum.