Orlando
Orlando í Flórída er einn vinsælasti ferðamannastaður heims. Borgin er þekkt fyrir fræga skemmtigarða, 
fjölbreytta afþreyingu og sólríkt loftslag allt árið. Þar er einnig fjöldi glæsilegra golfvalla sem gera svæðið að vinsælum áfangastað fyrir golfáhugafólk. Orlando hentar því vel fyrir fjölskyldur, pör og vini sem vilja njóta lífsins og skapa minningar.