Glasgow
Glasgow er lífleg og skapandi borg þar sem rík saga mætir nútímamenningu. 
Íslendingar hafa lengi haft sérstakt dálæti á borginni, ekki síst vegna frábærra verslunarmöguleika, 
líflegs borgarlífs og hlýlegrar stemningar. 
Fullkominn áfangastaður fyrir þá sem vilja upplifa ekta Skotland.
Glasgow er kraftmikil borg sem sameinar ríkulega sögu, skapandi listir og nútímalegt borgarlíf. Hún er þekkt fyrir einstaklega gestrisið fólk, litrík hverfi og fjölbreytt úrval af verslunum, veitingastöðum og börum. Íslendingar hafa lengi elskað að versla í Glasgow, en borgin býður einnig upp á óteljandi tækifæri til að njóta menningar, tónlistar og afþreyingar.
Borgin státar af glæsilegum viktorískum byggingum, sögufrægum hverfum og dramatísku landslagi við árbakka Clyde-árinnar. Glasgow er borg þar sem fortíð og nútíð mætast á lifandi hátt og skapar einstaka upplifun fyrir alla ferðamenn.
 
Áhugaverðir staðir og hverfi
George Square & Merchant City – Hjarta Glasgow, með stórum torgum, sögulegum byggingum, verslunum og kaffihúsum.
Glasgow Cathedral & Necropolis – Söguleg kirkja frá miðöldum sem veitir stórkostlegt útsýni yfir borgina.
Kelvingrove Art Gallery & Museum – Safn fullkomið fyrir listunnendur og fjölskyldur.
The Riverside Museum & Tall Ship – Nýsköpun og saga, frábært fyrir áhugafólk um skip og flutninga.
West End – Háskólahverfi Glasgow, með skemmtilegum börum, veitingastöðum og bókabúðum, sem veitir borginni menningarlegt og líflegt andrúmsloft.
 
Verslunarmöguleikar
Buchanan Galleries – Ein af stærstu verslunarmiðstöðvum Glasgow með breiðu úrvali af verslunum og vinsælum vörumerkjum í hjarta borgarinnar. 
Buchanan Street – Helsta verslunargatan með stórum verslunum, merkjavöruverslunum og klassískum búðum.
Argyle Street & Sauchiehall Street – Líflegar götur með fjölbreytt úrval af sérverslunum, markaðsbásum og veitingastöðum.
Princes Square – Stílhrein verslunarmiðstöð með boutique verslunum, veitingastöðum og flottum merkjavörum.
St. Enoch Centre – Stór og nútímaleg verslunarmiðstöð.
 
Veitingastaðir
The Ubiquitous Chip – Glæsilegur skoskur veitingastaður í West End.
Ox and Finch – Einn af best metnu fínustu matstöðunum í Glasgow
The Buttery – Vinsæll skoskur veitingastaður með hefðbundnum réttum og gómsætum mat. 
Dishoom Glasgow – Frábær indverskur veitingastaður með stórstaðnum metum fyrir mat og stemmningu.
Sugo Pasta – Bragðgóðir ítalskir pasta og pizzuréttir – frábær valkostur fyrir léttan en góðan mat.
 
Vinsælir barir og klúbbar
The Pot Still – Klassískur glasgow pub með stórt úrval af whiskíum og bjór – frábært fyrir kvöldstund í rólegri stemmningu.
The Piper Whisky Bar – Vinsæll whisky bar þar sem þú getur smakkað góða skoska whiskíi og drykki.
The Scotch Malt Whisky Society – Sérhæður whiskí bar með fínni drykkjarupplifun.
Scotia Bar – Klassískur Pub með góða bjórvalkosti og notalega stemmingu.
Blue Dog, The Absent Ear, Devil of Brooklyn og Slug and Lettuce Glasgow – Frábærir kokteildrykkjabarir og stemmningsstaðir fyrir kvöldið.
 
Glasgow er borg sem hefur allt – sögu, menningu, verslun, mat og skemmtilegt næturlíf.
Hvort sem þú ert áhugamaður um tónlist, listir, verslun eða matargerð,
þá mun Glasgow heilla öll skynfæri þín og bjóða upp á ógleymanlega upplifun í hjarta Skotlands.