Marga dreymir um að eyða nokkrum dögum í borginni, borða baquette, drekka franskt vín, sitja úti á kaffihúsum, skoða allar fallegu byggingarnar og baða sig í heitustu tískustraumunum. París er borgin sem maður upplifir alltaf eitthvað nýtt í enda margt hægt að skoða og upplifa.
Borgin var upphaflega byggð á litlu eyjunni hjá Notre Dame kirkjunni og stækkaði svo í þá dásamlegu borg sem við þekkjum hana í dag. Margar af þekktustu minnisvörðum heims er að finna í París. Þar má helst nefna Eiffel turninn, Sigurbogann, Notre Dame kirkjuna, Louvre safnið, Moulan Rouge, Sacré Cæur, Versalir, Palais Royal og allar þær ótal hallir fyrir jafnmörg konungdæmi og gleymum ekki fallegu ánni Signu. Æðislegt er að rölta um Champs Elysées á daginn, skoða mannlífið og verslanirnar. Margar litlar hliðargötur liggja út frá þessari merku götu og á kvöldin er þar að finna iðandi næturlíf.
Listin er allsráðandi í borginni og má aðallega sjá þess merki í listamannahverfinu. Fjölmargir þekktir listamenn eru frá París eins og söngkonan Édith Piaf, fatahönnuðirnir Coco Chanel, Hérmes, Lacoste, skartgripahönnuðurinn Cariter og rithöfundurinn Voltaire.
París á sér heilmikla sögu og ber þar helst að nefna frönsku byltinguna þar sem Parísarbúar réðust á Bastilluna, fangelsið, þann 14. júlí 1789. Þar kviknuðu lýðræðishugmyndirnar sem mörkuðu hugmyndafræðileg vatnaskil á 19. öld.
Helstu hverfin sem gaman er að heimsækja er Latínuhverfið, Mýrin, Montmarte og Belleville.
Áhugavert að skoða og gera
Eiffel-turninn - Eitt af þekktustu táknum heims. Það er hægt að fara upp í turninn til að njóta stórkostlegs útsýnis yfir borgina. Veitingastaður er líka í turninum en best er að bóka borð fyrir framm.
Louvre-safnið - Eitt stærsta listasafn heims, þar sem má sjá fræg verk eins og Mona Lisa, Vénus frá Milo og marga aðra heimsfræga listamenn.
Notre-Dame dómkirkjan – Glæsileg dómkirkja, einstök hönnun og sögulegur staður.
Montmartre – Þetta er mjög vinsælt og sjarmerandi hverfi í París. Þröngar steinilagaðar götur, litlar verslanir og notaleg kaffihús og vínbarir.
Champs-Élysées og Arc de Triomphe
Vinsælasta verslunargata Parísar er Champs-Élysées, sem endar við Arc de Triomphe, stórkostlegt minnismerki.
Musée d'Orsay - Listasafn sem er staðsett í fyrrum járnbrautarstöð, þekkt fyrir impressionist og post-impressionist verk. Þar má sjá verk eftir Monet, Van Gogh og Degas.
Le Marais – Sjarmerandi hverfi með fallegum verslunum, kaffihúsum og sögulegum byggingum.
Markaðir
Marché Bastille – Þessi markaður er staðsettur í Bastillu hverfinu og iðulega opið á sunudögum frá 7:30- 14:30. Þetta er stór markaður með handverskvöru, ferskum matvörum svo se meins og ostar, ávextir, kjötmeti og aðrara sælkera vörur.
Marché des Enfants Rouges – Þessi markaður er staðsettur í Le Marais hverfinu og er iðulega opinn alla daga nema mánudaga. Þetta er matarmarkaður sem að býður upp á úrval af alskyns réttum svo sem eins og tapas, sushi og grænmetisrétti.
Marché de Saint-Quentin - Þessi markaður er staðsettur nálægt við Gare de l’Est. Markaðurinn er iðulega opinn alla daga nema mánudaga frá 08:00-14:00. Þetta er vinsæll markaður meðal íbúa og ferðamanna. Hér er mikið af handverki og sælkera vörum.
Helstu verslunarmiðstöðvar í París
Les Halles / Forum des Halles –Lýsing: Þetta er stór verslunarmiðstöð með sirka 150 búðum. Staðsett í hjarta Parísar, með fjölbreytt úrval af alþjóðlegum merkjum og veitingastöðum.
Galeries Lafayette – Þetta er glæsilegt verslunarhús með um 200 verslunum. Hér má finna öll helstu lúxusmerki, tískuvörur, snyrtivörur og sælkera matvöru.
Lúxus outlet í París
La Vallée Village – Þetta er lúxus outlet sem er staðsett í sirka 35 km fjarlægð frá París. Verslanir oft með allt að 60 % afslátt af vörum og hér eru helstu merki eins og Gucci, Prada, Ralph Lauren og fleiri.
One Nation Paris - Þetta outlet er staðsett í 30 km frá París í Séris. Hér er mikið úrval af alþjóðlega merkjum og lúxusvörum.