Milanó
Mílanó borg er hjarta tískunnar, óperu og hönnunar.  Borgin á sér mikla sögu sem sést hvað mest á Duomo kirkjunni í miðbæ Mílanó. Við Navigli ána er ótrúlega fallegt hverfi þar sem tilvalið er að skella sér á aperitivo og njóta þeirrar yndislegu ítölsku hefðar með heimamönnum.
Mílanó borg er hjarta tískunnar, óperu og hönnunar.  Borgin á sér mikla sögu sem sést hvað mest á Duomo kirkjunni í miðbæ Mílanó. Við Navigli ána er ótrúlega fallegt hverfi þar sem tilvalið er að skella sér á aperitivo og njóta þeirrar yndislegu ítölsku hefðar með heimamönnum.
Snillingurinn Leonardo da Vinci setti sinn svip á Mílanó með verkinu síðasta kvöldmáltíðin í kirkjunni Santa Marie delle Grazie. Mekka óperunnar er í La Scala og að skella sér á óperu er upplifun sem enginn er svikinn af. Fjöldinn allur af úrvals veitinga- og skemmtistöðum eru í borginni og iðar mannlífið langt fram á nótt á hverjum einasta degi. Í Mílanó finna allir sér eitthvað fatakyns við hæfi og afskaplega auðvelt er að fylla ferðatöskurnar af fallegri ítalskri hönnun. Borgin hefur að geyma ýmsa fallega garða þar sem njóta má lífsins. Einnig er stutt er í aðrar ítalskar perlur frá Mílanó eins og Garda vatnið, Como vatnið, Cinque Terre og að sjálfsögðu hið þekkta vínhérað Toscana. Hvað meira er hægt að biðja um í einni ferð? Borg sem hefur eitthvað að geyma fyrir alla. 
Áhugaverðir staðir 
Duomo di Milano Kirkjan- Stendur á Duomo torginu sem er í hjarta miðbæjar Mílanó. Kirkjan er byggð í gotneskum stíl og er áberandi merki borgarinnar. Gaman er að labba um kirkjuna og upp á hana einnig. En þaðan er fallegt útsýni yfir Mílanó. 
Gallería Vittoria Emanuele II - Er falleg bygging sem er opin í átt að Duomo og í hina áttina í átt að Scala óperuhúsinu. Hátískuhönnun og lúxus kaffihús eru inn í Gallería og hafa ófáar tískusýningar verið haldnar þar inni. Giuseppe Mengoni hannaði bygginguna sem var stærsta verslunarsvæði í Evrópu á sínum tíma. 
Santa Maria della Grazie - Er merkileg kirkja, en ekki samt fyrir útlit hennar heldur fyrir eitt þekktasta málverk allra tíma. Málverkið eftir Leonardo da Vinci, Síðasta kvöldmáltíðin eða Cenacolo Vinciano. Verkið er málað á vegg kirkjunnar á árunum 1495-1497. 
Teatro alla Scala - eða óperuhúsið Scala. Eitt þekktasta og flottasta óperuhúsið er í miðbæ Mílanó. Svo sannarlega vert að skoða eða fara á óperu í Scala þar sem allir helstu óperusöngvarar hafa stigið á svið. Við eigum a.m.k. einn þar á meðal, Kristján Jóhannsson. Einnig er gaman að fara á Museo Teatrale alla Scala þar sem saga Scala er sögð í máli og myndum. 
Naviglio Grande- Er ótrúlega heillandi svæði. Hvort sem það sé á vorin eða á góðu vetrarkvöldi. Síkið, veitingastaðirnir og birtan af þeim gefur tóninn fyrir góðu kvöldi. Mikið er af góðum veitinga- skemmtistöðum og börum eru á svæðinu. Einnig er mikið um skemmtilegar sérverslanir. Sannarlega svæði sem vert er að skoða. 
Porta Ticinese - Var áður fyrr borgarhlið Mílanóborgar. Mikið af úrvals veitingastöðum og aperitivo stöðum eru á Corso di Porta Ticinese. Einnig eru þar skemmtilegar sérverslanir. Frá Porta Ticinese er stutt á sjarmerandi síkið við Navigli. 
Sforza Castle - Er gamall kastali sem var í eigu Visconti og Sforza fjölskyldnanna sem réðu ríkjum yfir Mílanó borg á árunum 1277-1535. Í dag er að finna þarna fallegan kastalagarð sem Mílanóbúar nota gjarnan til afslöppunar. Einnig eru listasöfn og má þar finna síðasta meistaraverk Michaelangelos, Pietá Rondanini, auk fjölda annara verka. 
Markaðir 
Mercato di Viale Papiniano – Þetta er einn af vinsælustu mörkuðunum í Mílanó. Hann er oftast opinn á mánudögum og fimmtudögum. Hér er að finna ferska matvöru, grænmeti, ávexti og sælkeravörur. Matarmarkaður þar sem hægt er að smakka á hinum ýmsu gómsætu réttum. 
Fiera di Sinigaglia – Þetta er flóamarkaður sem er iðulega opinn á laugardögum. Hér er að finna hina ýmsu hluti, fatnað, bækur, handverk og fleiri spennandi hluti. Líflegur markaður sem skemmtilegt er að fara á. 
Verslanir og verslunarmiðstöðvar 
Galleria Vittorio Emanuele II – Hér eru um 30 verslanir, aðalega lúxusverslanir. Fjöldi veitingastaða og kaffihúsa. 
Centro Commerciale Carosello – Þetta er verslunarmiðstöð sem er staðsett rétt fyrir utan Mílanó og eru þar um 150 verslanir. Hér eru fjöldi alþjóðlega fataverslanna og veitingastaða. 
Il Centro – Þetta er ein af stærstu verslunarmiðstöðvum á Ítalíu með yfir 200 verslanir og er stað sett rétt fyrir utan Milanó. Hér eru helstu aðlþjóðlegu fatamerki og fjöldi veitingastaða. 
Scalo Milano – Hér eru um 70 verslanir og mikið af lúxusverslunum og huggulegum veitingastöðum. 
Lúxus Outlet í Milanó 
Serravalle Designer Outlet – Þetta er ein af stærstu lúxus outlet verlslunarmiðstöðvum í Evrópu. Staðsett í rúmlega 90 km frá Mílanó. Hér eru lúxusmerki eins og Prada, Hugo Boss, Gucci, Balenciaga, Burberry, Fendi og fleiri. 
Scalo Milano Outlet – Þetta er nýleg verslunamiðstöð með um 70 verslunum. Hér er að finna mikið af alþjóðlegum fataverslunum og veitingastaði. 
Hefðbundnir réttir 
Cacio e Pepe - Einfaldur og bragðmikill pasta réttur með osti. 
Saltimbocca alla Romana – Þetta er góður réttur sem annað hvort kjúklingur eða svínakjöt fyllt með salami og salvíu og soðið upp úr hvítvíni. 
Roman-style Pizza  - Ekta pizza ítölsk þunnbotna pizza með hráskinku og mozarella osti. 
Tiramisu – Þekktasti eftirréttur sem samanstendur af kexi, rjóma, kaffisýrópi og kakó. 
Risotto – Klassískur ítalskur réttur. Risotto hrísgrjón sem eldað er upp úr hvítvíni með viðbættum parmesan osti. Sveppi, kjöt eða grænmeti svo blandað með. 
Bruschetta – Grillað súrdeigsbrauð með ferskum tómötum, basilíku og ólífuolíu. Frábær forréttur og snarl. 
Hefðbundnir drykkir
Limoncello - Sætkryddaður sítrónudrykkur sem oftast er drukkin eftir máltíðir. Framleiddur úr ferskum sítrónum og kemur frá Suður- Ítalíu. 
Aperol Spritz – Vinsæll kokteill sem er gerður úr Aperol, prosecco og sódavatni 
Ferskur og ljúfur drykkur sem er oft notaður sem fordrykkur. 
Negroni – Koktell samsettur úr gin, Campari og Vermut.
Grappa  - Sterkt áfengi sem oftast er drukkið sem eftirréttavín.