Róm hefur verði kölluð borgin eilífa og ber nafnið með rentu. Péturstorgið, Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar, Trevi gosbrunnurinn, Colosseum, Forum Romanum, Pantheon-hofið og Sixtínska kapellan með stórkostlegum málverkum eftir Michelangelo og Rafael. Þetta er aðeins brot af því sem Rómarborg hefur uppá að bjóða.
Róm var ein þekktasta borgin á tímum rómverska heimsveldisins, þekkt sem sjö hæða borgin. Borgin er og hefur verið vagga kaþólskrar trúar.
Það er gaman að versla í Róm en borgin er sannkölluð tískuborg. Hér fjöldinn allur af lúxus merkjavöruverslunum Gucci, Louis Vuitton, Chanel, Prada og fleiri. Einnig eru sérverslanir, verslunarmiðstöðvar og skemmtilegir markaðir í borginni. Ítalir eru þekktir fyrir einstaklega ljúffenga matargerð, eldbakaðar pizzur, pasta, ostar og góð vín. Um alla Róm eru veitingastaðir, kaffihús og vínbarir.
Áhugaverðir staðir
• Pompei - Þeir sem koma til Rómar mega ekki láta hina einstöku borg Pompei framhjá sér fara en hún er á heimsminjaskrá UNESCO. Árið 79. e.kr þá gaus eldfjallið Vesúvíus. Borgin fór undir ösku og 2000 manns létu lífið. Það var ekki fyrr en 1748 að fornleifafræðingar fundu borgina. Hér fundust fornminjar keisaratímans, margar byggingar, hallir, baðhús, heimili og vændishús. Einstök upplifun sem aldrei mun gleymast.
• Colosseum og Forum Romanum - Eitt flottasta og voldugast hringleikahús heims er Collosseum. Þetta er tákn Rómarborgar en einnig minning um þann tíma þegar að þrælar og kristnir menn þurftu að berjast fyrir lífi sínu borgarbúum til skemmtunar. Colosseum var byggt 70 e. Kr. en sagt er að ránsfengur úr musteri gyðinga í Jerúsalem hafi verið notað til þess að borga fyrir bygginguna. Fyrir utan Colosseum er gamla rómverska torgið Forum Romanum. Þetta er stærsta fornleifasafn heims og er allt utandyra. Sjón er söguríkari.
• Vatíkanið og Sixtínska kapellan - Hér eru frægustu listaverk heims frá klassíska tímans og endurreisnarinnar. Í Sixtínsku kapellunni eru stórkostleg ver frá tíma endurreisnarinnar en glæsilegasta verkið er loftmynd Michelangelos af sköpun heimsins og mynd hans af dómsdegi á gaflinum fyrir ofan altari páfa sem ekki verður með orðum lýst.
Markaðir
• Campo de' Fiori – Þetta er einn af vinsælustu mörkuðunum í Róm. Hann er opinn alla morgna. Hér er hægt að kaupa alskyns sælkera vörur, ferska ávexti og grænmeti. Líflegur og skemmtilegur markaður.
• Mercato di Testaccio – Þessi markaður er staðsettur í Testaccio hverfinu og er matarmarkaður og selur einnig úrval að sælkera matvöru, osta, kjöt, sjávarfang og margt fleira.
• Porta Portese – Þessi markaður er yfirleitt opinn á sunnudögum og er einskonar flóamarkaður. Hér er hægt að finna hina ýmsu listmuni, handverk frá heimamönnum, fatnað, skart og fleira.
• Mercato di San Lorenzo – Þessi markaður vinsæll bæði hjá heimamönnum og ferðamönnum. Hér er að finna listmuni, matvöru og ýmislegan anna varning.
Helstu verslunarmiðstöðvar í Róm
• Porta di Roma – Þessi verslunarmiðstöð er með um 220 verslanir. Hér er fjölbreytt úrval af fataverslunum, matvöruverslunum, veitingastöðum og afþreyingu.
• Euroma 2 ¬– Þessi verslunarmiðstö er með um 200 verslanir sem er staðsett í Eur hverfinu en þetta hverfi er þekkt fyrir lúxusverslanir.
• Castel Romano Designer Outlet – Þessi verslunarmiðstöð er staðsett rétt fyrir utan Róm. Hér eru verslanir eins og Gucci, Prada, Versace og fleiri merki. Hér er hægt að gera góð kaupa á lúxusvörumerkjum.
Helstu verslunargötur í Róm
• Via del Corso – Þetta er ein af aðalverslunargötum í Róm. Hér er að finna fjölbreytt úrval af alþjóðlegum fataverslunum sem og skemmtilegar ítalskar verslanir.
• Via dei Condotti – Þetta er þekktasta lúxusverslunargatan í Róm. Hér eru verslanir eins og
• Verslanir: Gucci, Prada, Valentino og fleiri lúxus merki.
• Via Cola di Rienzo – Þetta er aðalverslunargatan í Prati hverfinu. Hér eru að finna ódýrari fataverslanir, skemmtilega veitingastaði og kaffihús.
Hefðbundnir réttir
• Cacio e Pepe - Einfaldur og bragðmikill pasta réttur með osti.
• Saltimbocca alla Romana – Þetta er góður réttur sem annað hvort kjúklingur eða svínakjöt fyllt með salami og salvíu og soðið upp úr hvítvíni.
• Roman-style Pizza - Ekta pizza ítölsk þunnbotna pizza með hráskinku og mozarella osti.
• Tiramisu – Þekktasti eftirréttur sem samanstendur af kexi, rjóma, kaffisýrópi og kakó.
• Risotto – Klassískur ítalskur réttur. Risotto hrísgrjón sem eldað er upp úr hvítvíni með viðbættum parmesan osti. Sveppi, kjöt eða grænmeti svo blandað með.
• Bruschetta – Grillað súrdeigsbrauð með ferskum tómötum, basilíku og ólífuolíu. Frábær forréttur og snarl.
Hefðbundnir drykkir
• Limoncello - Sætkryddaður sítrónudrykkur sem oftast er drukkin eftir máltíðir. Framleiddur úr ferskum sítrónum og kemur frá Suður- Ítalíu.
• Aperol Spritz – Vinsæll kokteill sem er gerður úr Aperol, prosecco og sódavatni
• Ferskur og ljúfur drykkur sem er oft notaður sem fordrykkur.
• Negroni – Koktell samsettur úr gin, Campari og Vermut.
• Grappa - Sterkt áfengi sem oftast er drukkið sem eftirréttavín.