Barcelona
Barcelona stórborgina er alltaf jafn freistandi að heimsækja. Þessi einstaka borg iðar af lífi hvort sem það er dagur eða nótt. Borgin er mikil borg menningar, lista, matar og tísku. Spánverjar hafa átt frábæra listamenn og þekktustu listasöfn Barcelona eru helguð Pablo Picasso og Joan Míró. Fallegar og sérstæðar byggingar arkitektsins Gaudís prýða borgina en þar ber hæst dómkirkjan fræga La Sagrada Familia. 
Barcelona stórborgina er alltaf jafn freistandi að heimsækja. Þessi einstaka borg iðar af lífi hvort sem það er dagur eða nótt. Borgin er mikil borg menningar, lista, matar og tísku. Spánverjar hafa átt frábæra listamenn og þekktustu listasöfn Barcelona eru helguð Pablo Picasso og Joan Míró. Fallegar og sérstæðar byggingar arkitektsins Gaudís prýða borgina en þar ber hæst dómkirkjan fræga La Sagrada Familia. 
Það er yndislegt að sitja á kaffihúsi við Römbluna með sangríu í annarri og tapas í hinni, en Ramblan er eitt þekktasta stræti Spánar. Efst á Römblunni er hinn frægi aldagamli gosbrunnur, La Rambla de Canaletes. Út frá Römblunni hlykkjast göngugötur í allar áttir sem geyma litlar búðir, bari, veitingahús og matarmarkaðinn La Boqueria sem allir sælkerar þurfa að heimsækja.  
Áhugaverðir staðir  
Barceloneta -  vinsælasta ströndin í Barcelona. Hún er yfirleitt fjölmenn en mikið líf er um að vera á ströndinni. Þar eru einnig veitingastaðir sem og strandbarir. 
Plaça de Catalunya - er miðja Barcelona. Þarna mætist gamla og nýja borgin. Passeig de Gràcia er ein glæsilegasta gata Barcelona  Þar getur þú litið augum arkitektameistaraverk eftir Gaudi - Casa Batlló, La Predrera. Einnig eru þar mikið af flottustu tískuvöruverslunum heims. 
La Sagrada Familia - Kirkja hinnar heilögu fjölskyldu er eitthvað sem enginn lætur fram hjá sér fara á leið sinni um Barcelona. Hún er eftir Antoni Gaudí og er ein af frægustu kirkjum heims. Gaudí helgaði lífi sínu kirkjunni allt til dauðadags. Kirkjan er enn í smíðum og margir deila um hversu langt verkið er komið og sumir segja að smíðin séu aðeins hálfnuð. 
Güell garður – Stór almenningsgarður á Carmel hæð í Grácia hverfi borgarinnar skreyttur af mikilli snilld af hinum óviðjafnanlega Antoni Gaudí. Staðurinn er á Heimsminjaskrá UNESCO og ekki af ástæðulausu. Bekkir, byggingar og skreytingar a lá Gaudí út um allan garð.  Mosaíkmyndir hafa aldrei litið svona vel út. Garðurinn er nefndur eftir gömlum greifa sem hér vildi reisa mikla íbúðabyggð á sínum tíma. Sá hét Güell og varð ekki kápan úr því klæðinu. Í garðinum er að finna heimili Gaudís sem einnig er hægt að skoða.  
Gotneski hlutinn – Elsti borgarhluti Barcelona er Barri Gotic í norðurátt frá Römblunni. Þröngar götur, gömul hús og fjöldi smærri veitingastaða og fjölbreytt mannlíf.  
Tapas og matargerð - Barcelona er þekkt fyrir frábæra matargerð og tapas og eitthvað sem að allir ættu að gæða sér á með svalandi sangríu. 
Casa Batlló og Casa Milà (La Pedrera) Þetta eru tvær af frægustu byggingum Gaudi sem enginn má láta fram hjá sér fara. 
Helstu markaðir í Barcelona
Mercat de Sant Josep de la Boqueria (Boqueria Market) Þetta er einn þekktasti og vinsælasti matarmarkaðurinn í Barcelona staðsettur við Römbluna. Markaðurinn er opinn alla daga frá 08:00-20:30.
Mercat de Sant Antoni – Á þessum markaði er að finna ferska matvöru. Kjöt, osta, ávexti, grænmeti og ýmsar aðrar sælkera vörur frá heimamönnum. Þessi markaður er opinn virka daga frá 08:00-20:00.
Helstu verslunarmiðstöðvar í Barcelona
La Maquinista – Þetta er stærsta verslunarmiðstöðin í Barcelona með yfir 250 verslanir. Fjölbreytt úrval af alþjóðlegur fataverslunum og veitingastöðum. 
El Corte Inglés – Þetta er stórt verslunarhús sem er staðsett á nokkrum stöðum í borginni. Hér eru fjölbreytt úrval verslana. Tískuverslanir,  heimilsvörur og veitingastaðir.
Diagonal Mar – Þessi verslunarmiðstöð er með yfir 150 verslanir. Hágæða fataverslanir og veitingastaðir staðsett við ströndina. 
Helstu verslunargötur í Barcelona
Passeig de Gràcia Þetta er lúxusverslunargatan í Barcelona. Hér er að finna helstu lúxusverslanir eins og Gucci, Louis vuitton, Prada, Fendi og fleiri verslanir. Í þessari götu eru einnig frægar byggingar eftir Gaudi, Casa Batló og Cala Mila ( La Pedrera)
La Rambla – Þetta er þekktasta göngugatan í Barcelona. Hér eru verslanir, veitingastaðir, lífleg og skemmtileg stemming. 
Hefðbundnir réttir 
Barcelona er þekkt fyrir fjölbreytt úrval hefðbundinna spænskra rétta, sem endurspegla sögu og menningu Katalóníu. Hér eru nokkrir helstu hefðbundnu réttir sem gaman er að prófa. 
Paella - Þekktasti spænski rétturinn og er gerður úr hrísgrjónum, kjöti, sjávarfangi og grænmeti 
Tapas – Þetta eru ekta spænskir smáréttir sem hægt er að deila og borðaðir oftast sem forréttir. Pylsur, ostar, rækjur og kartöflur og fleira góðgæti. 
Crema Catalana – Þetta er eftirréttur Spánverja og er mjög svipaður eins og Crème Brûlée. Eins og einhverskonar vanillubúðingur með brúnuðum sykri á toppnum. 
Tortilla Española – Spænsk eggjakka gerð úr kartöflum og eggjum og stundum er bætt við lauk og öðru grænmeti. Klassískur réttur sem er oftast borinn fram kaldur. 
Vín og drykkir
• Cava - Freyðivín frá Katalóníu, fullkomið fyrir hátíðahöld.
• Vermut - Vinsæll fordrykkur, oft notið með tapas.
• Sangria - Hressandi blanda af víni, ávöxtum og stundum sterku áfengi.
• Horchata - Sætur, hnetukenndur drykkur úr tígrishnetum, vinsæll á Spáni.