Myndasafn
Ferðaáætlun
- UppseltVisitor og stuðningsmannaklúbbur Arsenal á Íslandi kynna frábæra hópferð.Athugið að það er mjög takmarkað sætaframboð í þessa ferð.Ferðin er föstudaginn 13. mars til mánudagsins 16. mars 2026.Staðfestur leikdagur er sunnudaginn 15. mars
Flugið:
Flogið er með Icelandair til og frá London/HeathrowInnifalið í pakkaferðinni:- Flug með Icelandair ásamt sköttum.
- 23 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur.
- Gisting í 3 nætur með morgunverði.
- Miði á leikinn.
- Akstur til og frá flugvelli.
- Íslenskur fararstjóri frá stuðningsmannaklúbbi Arsenal.
Hótellýsing
Maldron Hotel Finsbury Park – London
Maldron Hotel Finsbury Park er nýlegt og stílhreint hótel á frábærum stað fyrir þá sem vilja njóta London í ró og næði, án þess að vera langt frá líflegu borgarlífi. Hér sameinast nútímaleg hönnun, þægindi og einstaklega gott aðgengi að samgöngum.
- Rúmgóð og þægileg herbergi með loftkælingu og gæða rúmum
- Morgunverðarhlaðborð með heitum og köldum réttum
- Stutt í King’s Cross, Camden, Oxford Street og helstu kennileiti
- Fullkomið hótel fyrir pör, fjölskyldur og hópa
Gestir hrífast sérstaklega af góðri þjónustu, hreinleika og stílhreinum herbergjum – auk þess hve auðvelt er að komast hvert sem er í borginni. Hvort sem markmiðið er menning, verslun, íþróttaviðburðir eða einfaldlega að njóta borgarinnar, þá er Maldron Hotel Finsbury Park áreiðanlegur og vinsæll valkostur.
GOTT AÐ VITA:
Á hótelum eru almennt tveggja manna herbergi: Double (hjónarúm), Twin (tvö aðskilin eins manns rúm). Sum hótel bjóða uppá þriggja manna herbergi sem eru herbergi með hjónarúmi og auka bedda. Þriggja manna herbergi eru eingöngu ætluð fyrir tvo fullorðna sem sofa í sama rúmi og gest yngri en 14 ára sem sefur á beddanum. Þriggja manna herbergi eru alls ekki fyrir 3 fullorðna.
Greiðslumáti ferðar
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
Ábending til ferðalanga til Bretlands:
ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.
Hér er allt um þetta: www.visitor.is/eta
Fararstjórar
Kristinn Guðbrandsson og Ingvar Georgsson
Fararstjórar ferðarinnar eru frá Arsenal klúbbnum á Íslandi