Alicante
Hugmynd um verð á mann í árshátíðarferð til Alicante er frá kr. 159.900 kr. miðað við 2 saman í herbergi.
Gerum tilboð – svörum hratt.
Fáðu tilboð í árshátíðarferðina, fylltu út formið hér að neðan og þú heyrir frá okkur.
Eða sendu okkur póst á hopar@visitor.is
Alicante borg  tilheyrir Costa Blanca ströndinni sem liggur við Miðjarðarhafið. Borgin hefur er einstaklega sjarmerandi gamla bæinn Barrio de la Santa Cruz. Þar er mikið af góðum veitingastöðum, tapas, kaffihúsum og börum. Santa Barbara kastalann sem  trónir yfir borginni og þykir útsýnið yfir borgina einkar fagurt.
Ströndin Playa del Postiguet er vinsælasta baðströndin og gaman er að rölta strandlengjuna og enda við smábátahöfnina. Við smábátahöfnina eru flottir strandbarir, veitingastaðir og spilavíti borgarinnar. Það er gott að versla í Alicante má þar nefna Gran Via verslunarmiðstöðinni og El Corte Inglés.  
Fyrir golfunnendur þá er Alicante svæðið sannkölluð paradís. Fjöldinn allur er af golfvöllum á svæðinu og má þar nefna einna helst, Alicante Golf, El Plantio og Bonalba. 
 
Fyrirspurn um árshátíðarferð