Amsterdam
Hugmynd um verð á mann í árshátíðarferð til Amsterdam er frá kr. 159.900 kr. miðað við 2 saman í herbergi.
Gerum tilboð – svörum hratt.
Fáðu tilboð í árshátíðarferðina, fylltu út formið hér að neðan og þú heyrir frá okkur.
Eða sendu okkur póst á hopar@visitor.is
Amsterdam er alltaf jafn gaman að heimsækja og löngum verið vinsæl meðal ferðamanna. Amsterdam er svo miklu meir heldur en tréklossar, túlípanar og vindmyllur. 
Flestir ferðamenn láta sér nægja að skoða er miðbæjarkjarninn kringum Miðbæjarlestarstöðina, Amsterdam Central, en það er ennfremur elsti hluti borgarinnar. Heil fimm síki umkringja þennan kjarna; Singel, Herengracht, Keizergracht, Prinsengracht og Singelgracht en þau voru fyrr á öldum hluti af varnarvirki borgarinnar. Gaman er að rölta meðfram síkisbökkum, fá sér kaffi og njóta augnabliksins og horfa á mannlífið. 
 
Áhugaverðir staðir 
Demantasafnið - Holland er eitt af fimm löndum heims þar sem demantaverslun er hvað mest og er Amsterdam þar fremst meðal jafningja. Á þessu safni er saga demanta rakin og fjölmargir dýrgripir tengdir demöntum til sýnis. Einnig er hægt að versla demanta í safninu. 
Hús Rembrandt– Heimili listmálarans heimsfræga og margt ber þarna fyrir augu. Meðal annars fjöldi teikninga hans og skissa og farið gegnum ævi hans og feril allan.  
Hús Önnu Frank – Sennilega frægasta safn Hollands að Ríkissafninu frátöldu. Allir þekkja Önnu og þann harm sem hún og fjölskylda hennar varð fyrir í Seinni heimsstyrjöldinni. 
Kannabissafnið - The Hash, Marihuana & Hemp Museum). Nema. Vinsælt safn um þessa umdeildu plöntu og afurðir hennar. Safnið stendur í Rauða hverfinu við Oudezijdsachterburgwalstræti.  
Van Gogh safnið – Safn tileinkað þessum einstaka listamanni Hollands. Þónokkur af verkum hans er hér að finna þó þau allra frægustu séu annars staðar. Hér má þó líta augum verk á borð við Sólblómin og Kartöfluátvöglin.  
Ríkissafnið (Rijksmuseum) – Stærsta og merkilegasta safn í Hollandi öllu og í hópi bestu listasafna heims. Hér eru verk allra hollensku meistaranna auk þúsunda annarra merkisverka 
Rauðahverfið er í Amsterdam er í rauninni 3 hverfi, De Wallen, Singelgebied og Ruysdealkade. Hvort sem siðprúðum líkar betur eða verr eða þrátt fyrir aragrúa góðra safna og afþreyingar um alla borg er Rauða hverfið í dag og hefur alltaf verið vinsælasta hverfi ferðamanna að heimsækja. Þetta er elsta hverfi borgarinnar og mikil saga við hvert fótmál í bland við berbrjósta stúlkur víðsvegar í gluggum. 
Markaðir- fyrir þá sem hafa gaman af því að fara á markaði verða ekki vonsviknir, en í Amsterdam eru aragrúi af allskonar mörkuðum. 
Waterlooplein Markt er flóamarkaður sem toppar alla aðra flóamarkaði og í Amsterdam er einnig markaðir sem eru tileinkaðir antíkmunum, list og gömlum bókum. Albert Cuypmarkt er suðupottur krydda og litadýrðar frá mismunandi menningarheimum. Bloemenmarkt, er hinn skemmtilegi blómamarkaður.
 
Fyrirspurn um árshátíðarferð