Riga borgin er stærsta höfuðborg Eystrasaltslandanna og er staðsett við lengsta fljót landsins, Daugava. Í Riga er heillandi arkitektúr, sögulegar byggingar, markaðir og fallegur gamall bæjarhluti með steinlögðum götum og gömlum húsum. En höfuðborgin er einnig nútímaleg borg í mikilli þróun. Mikill munur er á byggingarstíl milli hverfa. Hér finnast rússnesk hverfi, skandinavísk hverfi, þýsk hverfi að ógleymdri gömlu miðborginni. Gamli bærinn er aldagamall og á heimsminjaskrá UNESCO. Í gamla hlutanum eru margar steinlagðar götur og torg. Þar má finna sögufrægar byggingar, til að mynda Hús Blackheads, Sænska hliðið sem Svíar byggðu árið 1698 og Kattar-húsið. Það er mjög hagstætt að borða og drekka í Riga. Í gamla bæjarhlutanum er fjöldi veitingahúsa og hugguleg kaffihús á hverju horni. Það þykir einnig einstaklega hagstætt að versla í Riga. Heimamönnum finnst sérstaklega gaman að versla á flóamörkuðum, second hand búðum og matarmarkaðinum. Það eru þó nokkrar verslunarmiðstöðvar í Riga og einnig er líka vinsælt að versla í gamla hluta Riga.