Frábær helgarferð til Ljubliana í beinu leiguflugi 22. - 26. apríl 2026
Ljubljana er fögur og áhugaverð lítil borg, ein minnsta höfuðborg í Evrópu en þar búa um 300 þúsund manns. Hún einkennist af ánni sem rennur í gegnum hana og við ána er virkilega notalegt að vera. Þar eru kaffihús og veitingastaðir og skemmtilegt að rölta um. Gamli bærinn er eins og klipptur út úr ævintýri, mjóar steinlagðar götur með litríkum húsum og falleg torg þar sem listamenn eiga það til að láta gamminn geisa.
Ljubljana er græn og gróin og fólkið þar lætur sér umhverfismál miklu varða og eru stolt af þeim árangri sem þar hefur nást. Borgin er rómantísk, full af menningu og sögu og frábærum mat. Kastalinn efst í bænum er hátt í 1000 ára gamall og eitt helsta aðdráttaraflið. Það er gaman að fara þar upp í kláf og skoða sig um enda er þaðan frábært útsýni yfir borgina.
Það er margt hægt að gera í Ljubljana og nágrenni. Sniðugt er að fara í göngutúr um bæinn eða hjólatúr.