Heilsuferð til Tenerife 8. - 15. nóvember 2025
Ferðin
Heilsuferð til Tenerife fyrir þá sem vilja hreyfa sig í skemmtilegum hóp, góðu veðri og fá fræðslu sem nýtist til frambúðar!
Ferðin er frá laugardeginum 8. nóvember til laugardagsins 15. nóvember 2025.
Ef þú vilt bæta heilsuna þína, fá leiðsögn í æfingum og mataræði ásamt fræðslu um hvernig hægt er að bæta sig sem manneskja - Þá er þetta ferð fyrir þig!
Ferð fyrir þá sem vilja prófa heilsu-nýjungar og ögra sér en einnig njóta öflugrar innri skoðunar með markþjálfun.
Kynnast nýjum vinum og njóta í botn í sólinn auðvitað!
Sigga og Guðrún hafa verið með heilsuferðir til Tenerife undan farin á sem hafa notið mikilla vinsælda.

Heilsuferð þar sem þú ert í fyrsta sæti og nýtur ferðalagsins sem þú skapar þér. Þessi ferð byggist mikið uppá heilsu-markþjálfun og innri skoðun. Einnig innri ró með yoga og göngutúrum.
Þú færð krefjandi verkefni bæði í hóp og sem einstaklingur.
Einnig munum við kryfja þitt markmið sem þú vilt betrumbæta og finna þín verkfæri til að ná þangað.
DAGSKRÁ - birt með fyrirvara um breytingar
8. nóvember - Laugardagur
Flug til Tenerife, hópurinn sóttur og keyrður á hótel.
Fólk kemur sér fyrir. Hópurinn hittist svo í kvöldverð á hótelinu og kynnist og farið verður yfir dagskrá næstu daga.
9. nóvember - Sunnudagur
Morgunverður
Hópurinn hittist kl 09.00
Fyrirlestur um markþjálfun, ásamt verkefnum. Hvernig set ég mér markmið sem hægt er að ná.
Eftir fyrirlestur og verkefni verður farið í líkamsræktarstöð sem er í göngufæri við hótelið. Þar gerum við saman æfingar í tækjasalnum og lærum tækni og líkamsbeitinu í tækjasal. Endum æfinguna á góðum teygjum.
Seinnipartinn verður farið saman í léttagöngu, þar sem hópurinn kynnist betur. Endum gönguna í drykk á skemmtilegum stað (drykkir greiðast aukalega).
10. nóvember - Mánudagur
Morgunverður
Hópurinn hittist kl 09.00
Verkefni dagsins er fyrirlestur um hvað langar mig að bæta/styrkja eða skipuleggja betur í sambandi við heilsu, mataræði vinnu eða annað.
Hópverkefni, spjall og samvinna.
Eftir fyrirlestur morgunsins, verður rölt niður á strönd og farið í Hatha Ygoa.
Sameiginlegur kvöldverður (greitt aukalega )
11. nóvember - þriðjudagur
Morgunverður
Hópurinn hittist kl 09.00
Fyrirlestur og verkefni um heilsuna. Hvernig ég vil bæta mig sem manneskju í vinnu, lífinu og hvernig get ég bætt heilsuna.
Seinnipartinn, létt skokk meðfram ströndinni með Guðrúnu eða tækjasalurinn á hótelinu með Siggu.
Sameiginlegur kvölderður á hótelinu fyrir þá sem vilja.
12. nóvember - miðvikudagur
Frjálsdagur, hægt að nota daginn og í að slaka á í sólinni. Kíkja á ströndina eða fara í skoðunarferðir.
13. nóvember - fimmtudagur
Morgunverður
Hópurinn hittist kl 09.00
Fyrirlestur um mataræði, vítamín ásamt matarkúrum sem hafa verið vinsælir síðustu ár. Verkefni, spjall og samvinna.
Förum saman í ræktina og tökum vel á því. Ögrum okkur, finnum okkar styrk og veikleika í ræktinni. Bætum okkar getu og kunnáttu.
14. nóvember - föstudagur
Morgunverður
Hittumst kl 9.30 förum á ströndina í Yoga, endum á góðum teyjum og slökun.
Seinni parturinn er tækjasalurinn opinn fyrir þær sem vilja æfa undir leiðsögn.
Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu, þar sem við höfum happdrætti og skemmtum okkur saman.
15. nóvember - laugardagur
Morgunverður
Frjáls dagur
Heimferð

Kynntu þér réttindi og styrkveitingar sem þitt stéttarfélag veitir og athugaðu hvort það nái yfir þessa ferð.
Innifalið í verði ferðar:
Flug fram og til baka, 20 kg taska
Gisting á 4 stjörnu hóteli með hálfu fæði (morgunverður og kvöldverður)
Aðgangur að heilsurækt hótelsins
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Heilsueflandi dagskrá
Gönguferð
Mánaðaráskrift í fjarþjálfun hjá Siggu
Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Drykkir með mat
Sameiginlegir kvöldverðir sem eru ekki á hótelinu.
Lágmarksþátttaka er 12 manns og áskilur Visitor sér rétt til að fella niður ferðina náist ekki sú þátttaka.
*Heilsuferðir okkar eru ætlaðar heilsuhraustu fólki í öllum getustigum.
Þessar ferðir okkar henta ekki sjúklingum eða fólki í endurhæfingu.
Ummæli ánægðs viðskiptavinar:
"Heilsuferðin hennar Siggu var mjög skemmtileg og vel skipulögð. Fjölbreyttar æfingar bæði í sal og tækjasal. Allir gátu tekið þátt sama í hvernig formi viðkomandi var. Ótrúlega góð leið til að kynnast nýju fólki, slappa af og rækta heilsuna."
*Heilsuferðir okkar eru ætlaðar heilsuhraustu fólki í öllum getustigum.
Þessar ferðir okkar henta ekki sjúklingum eða fólki í endurhæfingu.
Tigotan Hotel Tenerife

Tigotan 4* hótelið er staðsett í hjarta Playa de las Américas á Tenerife. Rosalega vinsælt meða Íslendinga. Tigotan er Adults only sem þýðir að það er aðeins fyrir gesti sem eru 18 ára og eldri. Þetta stórbrotna og nútímalega hótel býður upp á margs konar upplifun t.d. frábæra "infinity" sundlaug uppi á þaki, verönd með útsýni yfir Atlantshafið og flott herbergi sem eru hönnuð fyrir kröfuharða ferðamenn.

Verð
Verð frá 249.900 miðað við 2 saman í herbergi
Greiðslumáti
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
Visitor áskilur sér rétt til þess að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.
Náist ekki lágmarksþátttaka endurgreiðum við að fullu það sem þegar hefur verið greitt.
ICELANDAIR

Flug með Icelandair ásamt sköttum.
23 kg innritaður farangur
10 kg handfarangur samkvæmt skilmálum Icelandair.
Fararstjórar

Sigga Kr.
Sigga Kr. er Njarðvíkingur sem átti og rak líkamsræktarstöðina Perluna í Keflavík frá 1998 - 2008.
Hún er lærður þolfimikennari, einkaþjálfari, Hatha Yoga kennari, Markþjálfi og spinning kennari.
Kenndi 5 Les Mills kerfi og Pump FX og var kennari í Fusion Fitness Academy.