Myndasafn
Ferðaáætlun
- Settu þig í fyrsta sæti með Vilmu í SitgesKvennaferð til Sitges með Vilmu19.–24. maí 2027Það er kominn tími til að velja þigVilma, í samstarfi við Guðrúnu frá Visitor, býður upp á einstaka 5 nátta kvennaferð til Sitges þar sem við ætlum að njóta lífsins, sólarinnar og samverunnar – hægja aðeins á, hlæja mikið, borða góðan mat og koma heim með fullan tank af orku og fallegum minningum.Ferðin er hugsuð fyrir konur sem langar að stíga aðeins út úr hversdagsleikanum og gera eitthvað fyrir sig sjálfar.Þú þarft ekki að vera á neinum ákveðnum stað í lífinu, kunna yoga eða þekkja neinn fyrirfram. Þú getur komið ein, með vinkonu, systur, mömmu eða jafnvel öllum saumaklúbbnum.Markmiðið er einfalt: að eiga geggjaða daga saman.Veldu þigVið konur erum oft ótrúlega duglegar að hugsa um alla aðra, vinnuna, fjölskylduna, heimilið og allt sem þarf að gera.Stundum er gott að gefa sjálfri sér nokkra daga þar sem maður þarf ekki að sjá um neitt nema bara að vera, njóta og gera það sem manni finnst gaman og veitir manni gleði.Í ferðinni verður nóg pláss fyrir bæði samveru og frjálsan tíma. Þú getur tekið þátt í öllu sem er í boði eða einfaldlega notið Sitges á þínum forsendum.Tveir fallegir morgnar fyrir okkurTvo morgna í ferðinni byrjum við daginn saman með yoga- og vellíðunarkennara sem býr á svæðinu.Stundirnar verða blanda af mjúkum hreyfingum, öndun, slökun, hugleiðslu og æfingum sem snúa að sjálfstyrkingu og því að líta aðeins inn á við.Þetta verður ekki krefjandi yoga eða eitthvað sem þú þarft að hafa reynslu af – heldur notaleg stund til að vakna, hægja á huganum og byrja daginn með góðri orku.Fyrir þær sem vilja aðeins meiri hreyfingu er einnig góð líkamsræktaraðstaða á hótelinu sem hægt er að nýta eftir eigin hentugleika.Markmiðið með ferðinni er einmitt að hver og ein geti valið það sem hentar henni best – hvort sem það er róleg morgunstund, æfing, göngutúr, ströndin eða bara kaffibolli í sólinni.Sitges – fullkominn staður fyrir þessa ferðSitges er fallegur og líflegur strandbær rétt fyrir utan Barcelona og einn af þessum stöðum sem hefur ótrúlega margt upp á að bjóða.Fallegar strendur, þröngar götur, verslanir, kaffihús, veitingastaðir, menning, mannlíf og skemmtilegt næturlíf.Það er jafn gaman að rölta um gamla bæinn, setjast niður með glas, skoða verslanir, fara út að borða, liggja á ströndinni eða einfaldlega njóta stemningarinnar.Sitges er staður sem býður upp á bæði ró og líf – og það er einmitt það sem við viljum að ferðin endurspegli.Samvera, vín og góður maturHægt er að fara dagseferð til Barcelona fyrir þær sem kjósa það.Við ætlum ekki bara að slaka á. ????Við eigum líka sameiginlega vínsmökkun þar sem við njótum góðra veiga, matar og samveru.Eitt kvöldið förum við síðan saman út að borða á góðum veitingastað og eigum gott kvöld með mat, spjalli og gleði.Í gegnum ferðina verða líka óformlegar samverustundir þar sem við getum kynnst betur, spjallað, deilt reynslu og speglað okkur aðeins í öðrum konum.Engin pressa og engin fullkomnun – bara góður hópur kvenna að njóta lífsins saman.Við komuna til Sitges komum við okkur fyrir á hótelinu og hittumst síðan saman.Þar fáið þið fallegan goody bag, við skálum fyrir ferðinni og förum yfir það sem bíður okkar næstu daga.Markmiðið er að strax frá fyrsta degi myndist hlý og afslöppuð stemning í hópnum.Dagskrá ferðarinnarDagskráin verður birt nánar þegar nær dregur og er með fyrirvara um breytingar.• Tvær morgunstundir með yoga, hugleiðslu, slökun og sjálfstyrkingu• Líkamsræktaraðstöðu á hótelinu fyrir þær sem vilja meiri hreyfingu• Vínsmökkun á fallegum stað• Sameiginlegu kvöldi á góðum veitingastað• Göngutúr og upplifun í Sitges• Veglegur gjafapoki• Sameiginlegum samverustundum• Frjálsum tíma til að njóta Sitges, strandarinnar, verslana og veitingastaða• Og fullt af hlátri, spjalli og góðum minningumFerðin verður 19.–24. maí og gist verður í 5 nætur á 4 stjörnu hóteli með morgunverði.Verð frá 249.900 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi.Aukagjald fyrir einstaklingsherbergi: verð frá 59.900 kr.Takmarkað sætaframboð er í ferðina og hámarksfjöldi er 20 konur.Lágmarksþátttaka er 15 manns og áskilur Visitor sér rétt til að fella niður ferðina náist ekki sú þátttaka.GreiðslumátiHægt er að tryggja sér sæti með 40.000 kr. staðfestingargjaldi á mann í bókunarvélinni.Einnig er hægt að nýta Netgíró og Pei.Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.Innifalið• Flug með Icelandair• Gisting í 5 nætur á 4 stjörnu hóteli• Morgunverður• Tvær yoga-, slökunar- og hugleiðslustundir• Aðgangur að líkamsræktaraðstöðu hótelsins• Veglegur gjafapoki• Móttaka og skál við komu• Fararstjórn Visitor• Vilma með hópnum alla ferðinaEkki innifalið• Sameiginlegur kvöldverður, nema annað verði tekið fram• City tax á hóteli• Annað sem ekki kemur fram undir „Innifalið“Þetta er ekki ferð þar sem þú þarft að vera eitthvað annað en þú sjálf.Komdu eins og þú ert.Taktu vinkonuna, mömmu, systur – eða komdu ein og farðu heim með nýjar vinkonur.Fimm nætur þar sem þú færð að velja þig, njóta lífsins og fylla aðeins aftur á tankinn.Bestu kveðjurVilma Home
Hótellýsing
Hér sameinast notalegt Miðjarðarhafsandrúmsloft, góð þjónusta og frábært útsýni yfir hafið. Hótelið býður upp á 170 rúmgóð herbergi, mörg þeirra með svölum og sjávarútsýni. Herbergin eru björt og nútímaleg, með þægilegum innréttingum sem skapa afslappað andrúmsloft.
Gestir geta notið útisundlaugar með sólbaðsaðstöðu, líkamsræktarstöðvar og veitingastaða. Á Mirador Restaurant er boðið upp á Miðjarðarhafsmat með fallegu útsýni yfir hafið og á hótelinu er einnig bar með útiverönd – fullkominn staður til að njóta drykkjar eftir dag á ströndinni.
Staðsetningin er einn stærsti kostur hótelsins. Ströndin er rétt fyrir utan hótelið og miðbær Sitges er í næsta nágrenni. Þú getur auðveldlega gengið um þröngar götur gamla bæjarins, notið veitingastaða og kaffihúsa eða einfaldlega slakað á við Miðjarðarhafið.
Hotel Calipolis er því frábær kostur fyrir þá sem vilja sameina sól, strönd, afslöppun og líflegt bæjarlíf – allt á einum stað.
Hægt er að bóka herbergi með sjávarsýn gegn aukagjaldi