Abba Voyage - nóvember 2026

Frá198.900 ISK
London 5. - 8. nóvember 2026 
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • ABBA Voyage í London í nóvember 2026 - Hvar kemur þessi?
    Tónleikasýningin fer fram föstudagskvöldið 6. nóvember 2026.
    ABBA Voyage sýningin, okkar allra vinsælasta ferð og það er ekkert skrítið þar sem þetta er eitt allra flottasta show sem völ er á. Ekta ferð fyrir bæði hjón og stuð-hópa!
    ABBA Voyage sýningin er í formi sýnd­ar­veru­tón­leika í glænýrri tónleikahöll sem byggð var eingöngu fyrir þetta verkefni.
    Höllin er staðsett í Queen Elizabeth Olympic Park í austurhluta London.
     
    Á tónleikunum er 12 manna hljómsveit sem spilar undir "live" við hlið stafræna ABBA-hópsins og flytur 22 af bestu og vinsælustu lögum ABBA. Athugið að sýningin er 90 mínútur og EKKERT hlé en það má skreppa fram og sækja sér hressingu sem þá er afgreidd í plastglasi og má taka með inn í sal.
    Þetta er geggjað fyrir skemmtilega tjútt hópa og/eða ABBA aðdáendur!
    Þetta er hópferð okkar númer "ég veit ekki hvað!" á þessa sýningu og við getum staðfest að þetta er sturluð sýning - allar fyrri ferðir okkar hafa verið uppseldar!
    Sætin okkar í þessari ferð eru í svæði J/G á þessari skýringarmynd. Frábær sæti.
     
    Flugið:
    Icelandair - Heathrow.
    5. nóvember. Kl. 07:35. Lent í London kl. 11:55.
    8 nóvember. Kl. 13:05. Lent í KEF kl. 15:15.
     
    Innifalið í ferðinni:
    • Flug með Icelandair og innritaðri 23 kg tösku.
    • Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu frábærlega vel staðsettu.
    • Miði á tónleikana og rúta til og frá tónleikunum.
    • Akstur til og frá flugvelli.
    • Íslensk fararstjórn.
    Verð frá 198.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi. Aukagjald vegna einbýli kr. 59.900

Hótellýsing

Thistle London Marble Arch hótelið er staðsett á besta stað í miðbæ London ef þú vilt upplifa það besta sem borgin hefur uppá að bjóða. Afskaplega snyrtilegt og nútímalegt hótel nálægt Marble Arch lestarstöðinni.
Staðsett aðeins steinsnar frá helstu verslunargötunum, eins og Oxford Street, Regent St og Mayfair, auk fjölda frægra kennileita í London, þar á meðal Harrods, Hyde Park og Buckingham Palace, eða West End Theatre District.
Eftir annasaman dag má njóta máltíðar og kokteils með vinum á barnum með útsýni yfir Oxford Street.
TripAdvisor Travaller's Choice Award 2023.
 
GOTT AÐ VITA:
Á hótelum eru almennt tveggja manna herbergi: Double (hjónarúm), Twin (tvö aðskilin eins manns rúm). Sum hótel bjóða uppá þriggja manna herbergi sem eru herbergi með hjónarúmi og auka bedda. Þriggja manna herbergi eru eingöngu ætluð fyrir tvo fullorðna sem sofa í sama rúmi og gest yngri en 14 ára sem sefur á beddanum. Þriggja manna herbergi eru alls ekki fyrir 3 fullorðna.
Greiðslumáti
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum einnig Netgiró og PEI. Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
 
Ábending til ferðalanga til Bretlands:
ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.
Hér er allt um þetta: www.visitor.is/eta

Fararstjóri

Upplýsingar koma síðar.

Með í ferðinni er fararstjóri frá Visitor sem innritar farþega á hótel, dreifir miðum á leikinn/tónleikana og er farþegum innan handar með allt sem þarf.

Frá 198.900 ISK
Skoða flug og hótel