Andre Rieu - 10. - 13. desember 2026 AÐVENTUTÓNLEIKAR

Verð frá229.900 ISK
Maastricht í Hollandi 10. - 13. desember 
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • Andre Rieu - Aðventutónleikar 2026
    Ferðin er frá fimmtudeginum 10. desember til sunnudagsins 13. desember 2026.
     
    Tónleikarnir með Andre Rieu fara fram á MECC höllinni í Maastricht föstudagskvöldið 11. desember.
     
    DAGSKRÁ FERÐARINNAR
     
    Fimmtudagurinn 10. desember
    Icelandair FI-554.
    Flogið til Brussel kl. 07:35 frá Keflavík og lent kl.11:55  að staðartíma.
    Rúta í rúman klukkutíma til Maastricht. (Rúta innifalin).
    Innritun á hótelið og komið sér fyrir.
    Frjálst kvöld.
     
    Föstudagur 11. desember
    Frjáls dagur.
     
    Tónleikarnir með Andre Rieu um kvöldið.
    Akstur til og frá tónleikum er innifalinn.
     
    Sunnudagur 13. desember 
    Heimferðardagur.
    Rúta í rúman klukkutíma til Brussel. (Rúta innifalin)
    Icelandair FI-555
    Í loftið kl. 12:50.
    Lent á Íslandi kl. 15:20
     
    Maastricht - sætin okkar eru í svæði 5 (appelsínugult svæði) á myndinni hér fyrir ofan.
     
    Verð frá 229.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi (aukagjald vegna einbýli kr. 79.900)
     
    Greiðslumáti
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
    Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
    Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888 á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
    Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
     

     

Hótellýsing

Crowne Plaza Maastricht er fjögurra stjörnu hótel staðsett við fljótið Maas í hjarta Maastricht, aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá miðbænum.
 
Aðstaða og þjónusta
Herbergi: 174 nýlega endurnýjuð herbergi og svítur með lúxus rúmum, ókeypis Wi-Fi, flatskjásjónvörpum, kaffivélum og baðsloppum.

Veitingastaðir: De Mangerie býður upp á alþjóðlega matargerð með útsýni yfir fljótið, á meðan Kobe veitingastaðurinn býður upp á japanska matargerð.
 
Annað: Hótelið er reyklaust, með 24 tíma þjónustu og líkamsræktaraðstöðu.
 
 

Fararstjóri

LÓA SIGURÐARDÓTTIR

Lóa Sigurðardóttir
er ferskur og kraftmikill fararstjóri sem smitar út frá sér jákvæðni og góðri stemningu. Hún leggur mikla áherslu á framúrskarandi þjónustu, er skipulögð og lausnamiðuð og hefur einstakt lag á að láta ferðalöngum líða vel. Með Lóu í fararstjórn má búast við skemmtilegri, öruggri og eftirminnilegri ferð.
Verðdæmi 229.900 ISK