Myndasafn
Ferðaáætlun
- Nýtt í söluFerðin er frá föstudeginum 7. maí til mánudagsins 10. maí 2027.Tónleikarnir með Andre Rieu fara fram laugardaginn 8. maí í O2 Arena í Prag.Þar koma fram ásamt Andre, Johann Strauss Orchestra og margir gestir og jafnvel óvæntir gestir. Prógrammið hans Andre er aldrei það sama ár eftir ár, það er hans metnaður að koma stöðugt á óvart.Prag er ein af þeim borgum í Evrópu sem virkar nánast eins og lifandi sögusafn, þar sem miðaldir, barokk og nútími fléttast saman á mjög sérstakan hátt. Miðborgin er þekkt fyrir steinlagðar götur, litrík hús og stórkostlega byggingarlist sem hefur varðveist í hundruð ára.Í hjarta borgarinnar er Gamla ráðhústorgið (Old Town Square) þar sem frægu stjörnuklukkuna (Astronomical Clock) er að finna. Á hverri klukkustund safnast fólk saman til að horfa á litla „sýningu“ klukkunnar, en í kring eru kaffihús, kirkjur og götulistamenn sem gefa svæðinu líflega stemningu. Þar skammt frá er einnig Charles Bridge, ein þekktasta brú Evrópu, skreytt styttum og með útsýni yfir Vltava-ána og borgina í allar áttir – sérstaklega falleg í sólarupprás eða við sólsetur.Handan árinnar liggur litla borgin (Mala Strana) sem er rólegri og rómantískari hluti Prag. Þar er hægt að ganga upp að kastalanum í Prag , sem er eitt stærsta kastalasvæði í heimi. Innan kastalans er St. Vitus dómkirkjan, glæsileg gotnesk kirkja sem gnæfir yfir borgina og sést víða að.Prag er líka þekkt fyrir góða stemningu, kaffihúsamenningu og líflegt næturlíf.Maturinn er hefðbundinn mið-evrópskur með réttum eins og gúllas, svíni, dumplings og góðum bjór, sem Tékkar er mjög stoltir af.Á heildina litið er Prag borg sem hentar bæði þeim sem vilja upplifa sögu og arkitektúr sem og þeim sem vilja njóta góðrar matar- og menningar upplifunar í fallegu umhverfi.Föstudagurinn 7. maí 2027Icelandair FI-536Flogið til Prag kl. 07:20 frá Keflavík og lent kl. 13:05 að staðartíma.Um 30 mín akstur er frá flugvellinum á hótelið (Rúta innifalin).Innritun á hótelið og komið sér fyrir.Frjálst kvöld.Laugardagurinn 8. maí 2027Bátsferð með útsýni yfir helstu kennileiti Prag.
Bátsferðin tekur um klukkustund.Siglt er með glerbát með afturdraganlegu þaki þar sem hægt er að njóta óhindraðs útsýnis.
Siglt er undir Karlsbrúnna og hægt er að dást að Pragkastalanum á leiðinni.
Upplifunin býður upp á afslappað andrúmsloft með fallegu útsýni og þægilegu umhverfi á meðan þú skoðar borgina frá bátnum. (Þessi ferð er innifalin).Tónleikarnir með Andre Rieu um kvöldið.Akstur til og frá tónleikasvæðinu, aksturinn tekur um 20 mín. (Innifalið).Sunnudagurinn 9. maí 2027frjáls dagurMánudagurinn 10. maí 2027Heimferðardagur.Akstur út á flugvöll.Icelandair FI-537.Í loftið kl. 14:00.Lent á Íslandi kl. 15:55.Sætin okkar i O2 höllinni í PragSætin okkar á tónleikunum eru á mjög góðum stað.Á skýringarmyndinni (smellið á myndina hér að ofan) eru sætin okkar í svæði 001.Verð frá 229.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi(aukagjald vegna einbýlis kr. 39.900)Innifalið í ferðinni:Flug með Icelandair og 23kg tösku.Handfarangur skv. skilmálum Icelandair.Gisting í 3 nætur með morgunverði.Sigling um ánna.Miði á Andre Rieu tónleikana.Rúta til og frá tónleikunum.Akstur til og frá flugvelli.Íslensk fararstjórn.GreiðslumátiHægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald,
kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför og hafa farþegar þá viku til að greiða.
Hótellýsing
The Cloud One Prague er glæsilegt og nútímalegt 4 stjörnu hótel í hjarta Prag.
Hótelið er staðsett í göngufæri frá helstu kennileitum borgarinnar, þar á meðal gamla bæjartorginu, Karlsbrúnni og verslunar- og veitingasvæðum miðborgarinnar.
Hótelið býður upp á fallega hönnuð herbergi, notaleg sameiginleg rými og vinsælan þakbar með útsýni yfir borgina.
Frábær staðsetning, þægilegt umhverfi gerir The Cloud One Prague að góðum kosti fyrir þá sem vilja njóta þess besta sem Prag hefur upp á að bjóða.
Fararstjóri á vegum Visitor
Fararstjóri á vegum Visitor ferðaskrifstofu verðum með hópnum.