Andre Rieu Prag 7. - 10. maí 2027

Frá229.900 ISK
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • 1
    Ferðin er frá föstudeginum 7. maí til mánudagsins 10. maí 2027.
     
    Tónleikarnir með Andre Rieu fara fram laugardaginn 8. maí í O2 Arena í Prag. 
    Þar koma fram ásamt Andre, Johann Strauss Orchestra og margir gestir og jafnvel óvæntir gestir. Prógrammið hans Andre er aldrei það sama ár eftir ár, það er hans metnaður að koma stöðugt á óvart.
     
    Prag er ein af þeim borgum í Evrópu sem virkar nánast eins og lifandi sögusafn, þar sem miðaldir, barokk og nútími fléttast saman á mjög sérstakan hátt. Miðborgin er þekkt fyrir steinlagðar götur, litrík hús og stórkostlega byggingarlist sem hefur varðveist í hundruð ára.
     
    Í hjarta borgarinnar er Gamla ráðhústorgið (Old Town Square) þar sem fræga stjörnuklukkuna (Astronomical Clock) er að finna. Á hverri klukkustund safnast fólk saman til að horfa á litla „sýningu“ klukkunnar, en í kring eru kaffihús, kirkjur og götulistamenn sem gefa svæðinu líflega stemningu. Þar skammt frá er einnig Charles Bridge ein þekktasta brú Evrópu, skreytt styttum og með útsýni yfir Vltava-ána og borgina í öllum áttum – sérstaklega falleg í sólarupprás eða við sólsetur.
     
    Handan árinnar liggur Litla borgin (Mala Strana) sem er rólegri og rómantískari hluti Prag. Þar er hægt að ganga upp að kastalanum í Prag , sem er eitt stærsta kastalasvæði í heimi. Innan kastalans er St. Vitus dómkirkjan, glæsileg gotnesk kirkja sem gnæfir yfir borgina og sést víða að.
     
    Prag er líka þekkt fyrir góða stemningu, kaffihúsamenningu og líflegt næturlíf.
    Maturinn er hefðbundinn mið-evrópskur með réttum eins og gúllas, svíni, dumplings og góðum bjór, sem Tékka er mjög stolt af.
     
    Á heildina litið er Prag borg sem hentar bæði þeim sem vilja upplifa sögu og arkitektúr, og þeim sem vilja njóta góðrar matar- og menningarupplifunar í fallegu umhverfi.
     
     
    Föstudagurinn 7. maí 
    Icelandair FI-536..
    Flogið til Prag kl. 07:20 frá Keflavík og lent kl. 13:05 að staðartíma.
    Um 30 mín akstur er frá flugvellinum á hótelið (Rúta innifalin).
    Innritun á hótelið og komið sér fyrir.
    Frjálst kvöld.
     
    Laugardagurinn 8. maí
    Bátsferð með útsýni yfir helstu kennileiti Prag. Bátsferðin tekur um klukkustund.
    Silgt er með glerbát með afturdraganlegu þaki þar sem hægt er að njóta óhindraðs útsýnis yfir kennileiti Prag. Silgt er undir Karlsbrúnna og hægt er að dást að  Pragkastalanum á leiðinni. Upplifunin býður upp á afslappað andrúmsloft með fallegu útsýni og þægilegu umhverfi á meðan þú kannar borgina frá sjónum.(innifalið)
     
    Tónleikarnir með Andre Rieu um kvöldið.
    Akstur til og frá tónleikasvæðinu, aksturinn tekur um klukkustund (innifalið)
     
    Sunnudagurinn 9. maí
    frjáls dagur
     
    Mánudagurinn 10. maí
    Heimferðardagur.
    Akstur út á flugvöll
    Icelandair FI-537
    Í loftið kl. 14:00.
    Lent á Íslandi kl. 15:55.
     
    Sætin okkar i O2 höllinni í Prag
    Sætin okkar á tónleikunum eru á mjög góðum stað í höllinni.
    Á skýringarmyndinni eru sætin okkar í svæði 1 og 2.
     
    Verð frá 229.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi
    (aukagjald vegna einbýlis kr. 39.900)
     
    Innifalið í ferðinni:
    Flug með Icelandair og innritaðri 23 kg tösku.
    Handfarangur skv skilmálum Icelandair.
    Gisting í 3 nætur með morgunverði.
    Gönguferð um miðborg Prag.
    Miði á Andre Rieu.
    Rúta til og frá tónleikunum.
    Akstur til og frá flugvelli.
    Íslensk fararstjórn.
     
    Greiðslumáti
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni. Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
    Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

     

Hótellýsing

The Cloud One Prague er glæsilegt og nútímalegt 4 stjörnu hótel í hjarta Prag.
Hótelið er staðsett í göngufæri frá helstu kennileitum borgarinnar, þar á meðal gamla bæjartorginu, Karlsbrúnni og verslunar- og veitingasvæðum miðborgarinnar. 
Hótelið býður upp á fallega hönnuð herbergi, notaleg sameiginleg rými og vinsælan þakbar með útsýni yfir borgina. 
Frábær staðsetning, þægilegt umhverfi gerir The Cloud One Prague að góðum kosti fyrir þá sem vilja njóta þess besta sem Prag hefur upp á að bjóða.

Fararstjóri á vegum Visitor

Fararstjóri á vegum Visitor ferðaskrifstofu verðum með hópnum.

Frá 229.900 ISK