Andre Rieu - júlí 2026

Frá249.900 ISK
Maastricht í Hollandi 17. - 20. júlí 
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • Andre Rieu - Sumar 2026
    FERÐIN ER UPPSELD - BIÐLISTI 
    Ferðin er frá föstudeginum 17. júlí til mánudagsins 20. júlí 2026.
    Tónleikarnir með Andre Rieu fara fram á hinu rómantíska torgi Vrijthof í miðbæ Maastricht en torgið er umlukið fjölda veitingastaða, verslana og glæsibygginga. Þar koma fram ásamt Andre, Johann Strauss Orchestra og margir gestir og jafnvel óvæntir gestir. Prógrammið hans Andre er aldrei það sama ár eftir ár, það er hans metnaður að koma stöðugt á óvart.
    DAGSKRÁ FERÐARINNAR
     
    Föstudagurinn 17. júlí
    Icelandair FI-554.
    Flogið til Brussel kl. 07:40 frá Keflavík og lent kl. 12:55 að staðartíma.
    Rúta í rúman klukkutíma til Maastricht. (Rúta innifalin).
    Innritun á hótelið og komið sér fyrir.
    Frjálst kvöld.
     
    Laugardagurinn 18. júlí
    Frjáls dagur.
    Tónleikarnir með Andre Rieu um kvöldið.
    Það er um 10-15 mín gangur frá hóteli að tónleikatorginu.
    Þeir sem eiga erfitt með gang þá er hægt að taka leigubíla sem stoppa mjög nálægt torginu og þaðan er auðvelt að labba.
     
    Sunnudagurinn 19. júlí
    Tveggja tíma bátsferð um ánna Meuse eða Maas. (Innifalið)
     
    Mánudagurinn 20. júlí
    Heimferðardagur.
    Rúta í rúman klukkutíma til Brussel. (Rúta innifalin)
    Icelandair FI-555
    Í loftið kl. 14:00.
    Lent á Íslandi kl. 15:15.
     
    Maastricht - sætin okkar
    Sætin okkar á tónleikunum eru á mjög góðum stað miðsvæðis á torginu.
    Á skýringarmyndinni eru sætin okkar í svæði B1.
     
    Verð frá 249.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi (aukagjald vegna einbýli kr. 76.900)
     

Hótellýsing

Crowne Plaza Maastricht er fjögurra stjörnu hótel staðsett við fljótið Maas í hjarta Maastricht, aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá miðbænum.

Aðstaða og þjónusta
Herbergi: 174 nýlega endurnýjuð herbergi og svítur með lúxus rúmum, ókeypis Wi-Fi, flatskjásjónvörpum, kaffivélum og baðsloppum. Sum herbergi bjóða upp á útsýni yfir fljótið eða eru með svölum.
Veitingastaðir: De Mangerie býður upp á alþjóðlega matargerð með útsýni yfir fljótið, á meðan Kobe veitingastaðurinn býður upp á japanska matargerð.
Annað: Hótelið er reyklaust, með 24 tíma þjónustu og líkamsræktaraðstöðu.

Greiðslumáti
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888 á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

Fararstjóri

Sigurður Hlöðversson
Siggi Hlö er þaulvanur fararstjóri í yfir 30 ár auk þess að hafa skemmt landsmönnum í útvarpi, sjónvarpi og plötusnúðabrölti sínu jafnvel enn lengur.
Hér er á ferðinni lausnamiðaður maður sem gefur farþegum gott sjálfstraust að allt sé eins og það á að vera.
Siggi og eiginkona hans Obbý eru eigendur Visitor ferðaskrifstofu.
Frá 249.900 ISK
Skoða flug og hótel