Myndasafn
Ferðaáætlun
- Bruno Mars The Romantic TourAÐEINS FLUG, GISTING OG PREMIUM MIÐI Á TÓNLEIKANAFerðin er föstudaginn 17. júlí til mánudagsins 20. júlí 2026.Tónleikarnir fara fram sunnudagskvöldið 19. júlí 2026 á Wembley í London.Miðarnir okkar veita aðgang að Premium Level 2.VIP inngangur til að forðast biðraðir!Premium Level 2 þýðir að sætin okkar eru neðstu svölum í hólfum sem byrja á 200 og eitthvað. Sætisnúmer koma þegar nær dregur ferð.Innifalið í pakkaferðinni:
- Flug með ICELANDAIR ásamt sköttum, 23 kg taska og 10 kg í handfarangri.
- Flogið er út á Heathrow og heim frá Gatwick.
- 23 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur
- Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli.
- Miði í Premium Level 2 aðgang á tónleikunum.
EKKI INNIFALIÐ:- Akstur til og frá flugvelli.
- Íslensk fararstjórn.
Verð frá 249.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi. Aukagjald vegna einbýlis kr. 54.900.
Hótellýsing
Crowne Plaza Kings Cross
Dveldu í hjarta London – með þægindum í hæsta gæðaflokki
Crowne Plaza London – Kings Cross býður upp á fullkomna blöndu af nútímalegri hótelupplifun og frábærri staðsetningu. Hótelið er aðeins í stuttri göngufjarlægð frá Kings Cross St. Pancras.
- Stílhrein og rúmgóð herbergi
- Veitingastaður og bar með fjölbreyttum réttum
- Heilsulind, innilaug og líkamsrækt
- Ráðstefnu- og fundaraðstaða
Hvort sem þú ert á ferð vegna viðskipta eða skemmtunar, er Crowne Plaza London – Kings Cross kjörinn staður til að slaka á, njóta og vera nálægt öllu því sem London hefur upp á að bjóða.
GOTT AÐ VITA:
Á hótelum eru almennt tveggja manna herbergi: Double (hjónarúm), Twin (tvö aðskilin eins manns rúm). Sum hótel bjóða uppá þriggja manna herbergi sem eru herbergi með hjónarúmi og auka bedda. Þriggja manna herbergi eru eingöngu ætluð fyrir tvo fullorðna sem sofa í sama rúmi og gest yngri en 14 ára sem sefur á beddanum. Þriggja manna herbergi eru alls ekki fyrir 3 fullorðna.
Greiðslumáti
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
Ábending til ferðalanga til Bretlands:
ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.
Hér er allt um þetta: www.visitor.is/eta