Céline Dion í París 13. - 16. maí 2027 - AUKA FERÐ !

Verð frá295.900 ISK
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • Céline Dion í París 2027
    AUKAFERÐ

    Síðasta tækifærið til að sjá Celine Dion á sviði!
    Tónleikarnir fara fram í París laugardagskvöldið 15. maí 2027.

    Í maí 2027 stígur Celine Dion á svið í París í allra síðasta sinn.
    Síðustu sex tónleikarnir á einstökum ferli einnar ástsælustu og áhrifamestu söngkonu heims verða tilfinningaþrungin kveðjustund sem aðdáendur hennar munu aldrei gleyma.
     
    Ímyndaðu þér stemninguna þegar fyrstu tónarnir hljóma og Celine flytur lögin sem hafa fylgt okkur í áratugi - í París, borginni sem verður vettvangur lokakaflans á stórkostlegum ferli hennar.
     
    Þetta er ekki bara tónleikaferð. Þetta er síðasta tækifærið til að upplifa Celine Dion á sviði.

    SÆTIN Á TÓNLEIKUNUM
    Sætin okkar í þessari ferð eru á  svæði 106 -107

    Flugið:
    Icelandair - Paris CDG
    13.maí  Kl. 07:35. Lent í París kl. 13:00.
    16. mai  Kl. 14:00. Lent í KEF kl. 15:35
     
    Innifalið í ferðinni:
    Flug með Icelandair og innritaðri 23 kg tösku.
    Handfarangur skv skilmálum Icelandair.
    Gisting í 3 nætur með morgunverði.
    Miði á Celine Dion 15. mai.
     
    Ekki innifalið:
    Akstur til og frá flugvelli
    Fararstjórn
    City tax á hóteli
     
    Verð frá kr. 295.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi.
    Aukagjald vegna einbýli kr. 42.900
     
    Greiðslumáti
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald,
    kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
    Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
     
    Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför og hafa farþegar þá viku til að greiða.

     

Hótellýsing

Mercure Paris Nanterre
 
Mercure Paris Nanterre er glæsilegt 4 stjörnu hótel í Nanterre, rétt fyrir utan miðborg Parísar. Hótelið er góður kostur fyrir þá sem vilja sameina þægilega gistingu, góða þjónustu og auðveldar samgöngur inn í miðborgina.
 
Herbergin eru nútímaleg, rúmgóð og smekklega innréttuð, með þægilegum rúmum, loftkælingu, sjónvarpi, Wi-Fi og öllu því helsta sem þarf fyrir notalega dvöl.
 
Á hótelinu er veitingastaður og bar þar sem hægt er að njóta góðrar máltíðar eða slaka á eftir daginn í París. Morgunverður er í boði á hótelinu og hentar vel fyrir þá sem vilja byrja daginn vel áður en haldið er út að skoða borgina.
 
Staðsetningin í Nanterre hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja vera í rólegra umhverfi en samt með greiðan aðgang að París. Með almenningssamgöngum er auðvelt að komast að helstu áhugaverðu stöðum borgarinnar, en La Défense viðskiptahverfið er einnig í næsta nágrenni.
 
Verðdæmi 295.900 ISK