Myndasafn
Ferðaáætlun
- CMA Fest í Nashville USACMA Fest 2027 - Tónlistarveisla í hjarta Nashville
Einstök ferð til Nashville 9. - 16. júní 2027, þar sem við sameinum eina stærstu kántrítónlistarhátíð heims, CMA Fest, við nokkrar af þekktustu tónlistarupplifunum borgarinnar.
Í sjö nætur verður Nashville okkar heimaborg og tónlistin verður aldrei langt undan. Við upplifum ótrúlega stemningu CMA Fest, fetum í fótspor Elvis Presley og Dolly Parton í hinu sögufræga RCA Studio B, kynnumst sögu kántrítónlistarinnar á Country Music Hall of Fame og ljúkum ferðinni með sannkölluðu Nashville-kvöldi á hinu heimsfræga Grand Ole Opry.
VERÐFerðin kostar frá kr. 598.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi.
DAGSKRÁ FERÐARINNAR9. júní, Velkomin til Nashville - The Music CityVið lendum á Nashville International Airport, þar sem rúta bíður hópsins og flytur okkur beint á hótelið í Downtown Nashville.
Við komu tekur starfsfólk á staðnum á móti hópstjóra með welcome bags fyrir gesti og fer yfir helstu upplýsingar varðandi dvölina og dagskrána fram undan.Síðan er komið að því að koma sér fyrir og byrja að njóta Nashville, borgarinnar þar sem lifandi tónlist, suðurríkjastemning og skemmtilegt mannlíf eru allt í kring.
10. - 13. júní – CMA FESTNæstu fjórir dagar verða sannkölluð tónlistarveisla þegar CMA Fest tekur yfir Nashville.CMA Fest er einn stærsti viðburður kántrítónlistarheimsins og þessa daga verður miðborg Nashville að einu stóru tónlistarsvæði. Dagskráin hefst strax um morguninn og getur staðið fram undir miðnætti - með tónleikum, viðburðum og fjölbreyttri afþreyingu víðs vegar um Downtown.
Staðsetning hótelsins kemur sér sérstaklega vel þessa daga. Opinberir viðburðir CMA Fest í miðborginni eru í um það bil einnar mílu radíus frá hótelinu, þannig að hægt er að ganga á milli viðburða og njóta stemningarinnar án þess að vera bundin við rútuakstur.
Innifaldir eru 100-level miðar á CMA Fest, þar sem gestir fá tækifæri til að upplifa stórkostleg tónleikakvöld og einstaka stemningu með kántríaðdáendum alls staðar að úr heiminum.
Sérstakur Songwriter EventLaugardaginn 12. júní kl. 12:30 verður boðið upp á sérstakan Songwriter Event, sem er innifalinn í ferðinni.Lagahöfundar skipa einstakan sess í tónlistarheimi Nashville - hér eru sögurnar á bak við lögin jafn mikilvægar og listamennirnir sem flytja þau. Þetta verður því skemmtileg viðbót við CMA Fest upplifunina og tækifæri til að kynnast annarri hlið á tónlistarborginni.Staðsetning og listamenn verða kynnt síðar.
14. júní - Tónlistarsagan lifnar viðEftir fjóra viðburðaríka daga á CMA Fest tekur við dagur þar sem við köfum enn dýpra í hina einstöku tónlistarsögu Nashville.
Country Music Hall of Fame & MuseumKl. 10:00 heimsækjum við Country Music Hall of Fame and Museum, einn mikilvægasta áfangastað borgarinnar fyrir alla sem hafa áhuga á tónlist.Hér er saga kántrítónlistarinnar sögð í gegnum einstaka muni, hljóðfæri, sviðsbúninga, ljósmyndir og upptökur sem tengjast mörgum af stærstu nöfnum tónlistarsögunnar.Gestir skoða safnið á eigin hraða og að heimsókn lokinni gefst tími til að fá sér hádegisverð á eigin vegum í nágrenninu.
Nashville – Music City USAKl. 14:00 sækir rúta okkur á hótelið og við leggjum af stað í leiðsögn um Nashville – Music City USA.Við kynnumst helstu kennileitum Downtown og Midtown Nashville og fáum betri innsýn í borgina, söguna og tónlistarmenninguna sem hefur gert Nashville heimsfræga.
Historic RCA Studio B – þar sem goðsagnirnar tóku uppEinn af hápunktum dagsins verður leiðsögn um Historic RCA Studio B, eitt sögufrægasta upptökuver Nashville.Það er sérstök tilfinning að ganga inn í þetta látlausa upptökuver og vita að hér stóðu margar af stærstu stjörnum tónlistarsögunnar fyrir framan hljóðnemann.Elvis Presley, Dolly Parton og fjölmargir aðrir goðsagnakenndir listamenn tóku hér upp lög sem síðar urðu hluti af bandarískri tónlistarsögu.Studio B átti jafnframt stóran þátt í þróun hins svokallaða Nashville Sound og heimsóknin gefur einstaka innsýn í tímabilið þegar Nashville festi sig í sessi sem ein mikilvægasta tónlistarborg heims.
Um kl. 17:30 komum við aftur á hótelið og kvöldið er frjálst.
15. júní - Bak við tjöldin á Grand Ole OprySíðasti heili dagur ferðarinnar verður einstaklega skemmtilegur og viðeigandi endir á tónlistarævintýrinu okkar í Nashville.
Backstage á Grand Ole OpryKl. 15:00 förum við í leiðsögn baksviðs í Grand Ole Opry House.Þarna fáum við að sjá hlið á Opry sem hinn almenni tónleikagestur fær ekki að upplifa og skyggnast bak við tjöldin á einum frægasta tónlistarstað Bandaríkjanna.Við kynnumst sögu Grand Ole Opry, sjáum svæðin þar sem listamenn undirbúa sig fyrir sýningarnar og fáum innsýn í þá einstöku hefð sem hefur gert Opry að hjarta kántrítónlistarinnar í meira en heila öld.
Suðurríkjamatur hjá Paula DeenEftir heimsóknina á Opry er komið að sannkölluðum suðurríkjakvöldverði.Kl. 17:00 snæðum við saman family-style kvöldverð á Paula Deen's Family Kitchen við Opry Mills, þar sem áherslan er á klassískan suðurríkjaheimilismat og réttunum er deilt við borðið – skemmtileg og afslöppuð upplifun fyrir hópinn.
Grand Ole Opry – fullkominn endir á Nashville-ferðinniKl. 19:00 tekur svo við einn af hápunktum ferðarinnar þegar við fáum okkur sæti á hinu heimsfræga Grand Ole Opry.Í meira en heila öld hefur Opry verið einn mikilvægasti vettvangur kántrítónlistarinnar. Hér hafa stærstu nöfn tónlistarsögunnar stigið á svið og enn í dag mætast rótgrónar stórstjörnur og nýjar kynslóðir listamanna á sama sviði.Við fáum frátekin sæti á sýninguna og njótum síðasta kvöldsins í Nashville þar sem ferðin byrjaði og endar – í tónlistinni.Það verður erfitt að hugsa sér betri lok á vikunni í Music City.
16. júní - HeimferðEftir sjö nætur fullar af tónlist, upplifunum og einstakri Nashville-stemningu er komið að heimferð.Rúta sækir hópinn á hótelið og ekur á Nashville International Airport fyrir flugið heim.
Innifalið í ferðinni• 7 nátta gisting á Drury Plaza Hotel Nashville Downtown• Heitur morgunverður alla morgna• 5:30 Kickback með heitum mat og köldum drykkjum síðdegis• CMA Fest - 100-level miðar• Sérstakur Songwriter Event• Aðgangur að Country Music Hall of Fame and Museum• Leiðsögn um Nashville - Music City USA• Leiðsögn um Historic RCA Studio B• Backstage Tour á Grand Ole Opry House• Family-style kvöldverður á Paula Deen's Family Kitchen• Frátekin sæti á Grand Ole Opry• Rútuakstur til og frá Nashville-flugvelli• Rútuakstur í Nashville City Tour og RCA Studio B• Rútuakstur vegna dagskrár við Grand Ole Opry
GreiðslumátiHægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald,kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför og hafa farþegar þá viku til að greiða.
Hótellýsing
Drury Plaza Hotel Nashville Downtown
Gisting í hjarta Nashville
Gisting í hjarta Nashville
Dvalið verður í sjö nætur á Drury Plaza Hotel Nashville Downtown, frábærlega staðsettu hóteli í miðborg Nashville. Staðsetningin hentar einstaklega vel á meðan CMA Fest stendur yfir, enda fara helstu viðburðir hátíðarinnar fram í Downtown og eru í göngufæri frá hótelinu.
Heitur morgunverður er innifalinn alla morgna, svo hægt er að byrja daginn vel áður en haldið er út í iðandi mannlífið.
Síðdegis býður hótelið upp á hið vinsæla 5:30 Kickback, þar sem gestir geta fengið sér heitan mat og kalda drykki áður en haldið er aftur út í kvöldið.
Fararstjóri
FARARSTJÓRI FRÁ VISITOR
Í ferðinni verður fararstjóri frá Visitor sem fylgir hópnum frá upphafi til enda. Fararstjórinn sér til þess að allt gangi sem best fyrir sig, aðstoðar farþega eftir þörfum og heldur utan um skipulag ferðarinnar á staðnum.
Við erum að leggja lokahönd á val á fararstjóra og kynnum hann nánar þegar nær dregur ferð.