Eros Ramazzotti - júní 2026

Frá289.900 ISK
Róm 14. - 19. júní 2026
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • Eros Ramazzotti á heimavelli í Róm 16. júní - UPPSELT!

    Eros Ramazzotti á Ólympíuleikvangnum í Róm!
    Ferðin er frá sunnudeginum 14. júní til föstudagsins 19. júní 2026

    Tónleikaupplifun sem þú munt aldrei gleyma.
    Ítalska popp goðið flytur smellina sem allir elska.
    Tónleikarnir, skoðunarferð um Róm og spennandi vínsmökkun ásamt fullt af frítíma til að gera eitthvað sem þig/ykkur langar til að gera.
    Ekta ferð fyrir ástfangin pör og turtildúfur!

    Dagskrá ferðarinnar

    14.06.26
    Ferðadagur til Róm

    15.06.26
    Skoðunarferð um Róm - Classic and Ancient Rome tour
    Hálfsdags skoðunarferð ásamt enskumælandi leiðsögumanni.

    16.06.26
    Tónleikadagurinn
    Rúta til og frá tónleikunum

    17.06.26
    Frjáls morgun
    Vínkynning ásamt léttu snakki seinni partinn í Alban Hills / Frascati svæðinu.

    18.06.26
    Frjáls dagur

    19.06.26
    Heimferðardagur

    Flugið:
    Icelandair fram og til baka á Róm.

    Innifalið í ferðinni:

    Flug með Icelandair og innritaðri 23 kg tösku.

    Gisting með morgunverði í 5 nætur.

    Miði á tónleikana og rúta til og frá tónleikunum.

    Akstur til og frá vínsmökkun ásamt aðgangi að vínsmökkuninni.

    Akstur til og frá flugvelli.

    Íslensk fararstjórn.
     

    Verð frá 298.900 á mann miðað við 2 saman í herbergi.

Hótellýsing

Grand Hotel Tiberio****

Grand Hotel Tiberio í Róm er fjögurra stjörnu hótel með klassískum, elegant stíl. Það er miðlungs stórt hótel, ekki lúxushótel á stjörnu mælikvarða fimm, en býður upp á góð þægindi, þægilega herbergja stærð og þjónustu sem hentar bæði ferðalöngum og fólki í viðskiptaferðum.

Staðsetningin er þægileg, um 20 mínútur gangur að Vatíkaninu t.d. Hótelið býður upp á þægindi nútímans eins og loftkælingu, Wi-Fi, veitingastað og bar. Þetta er hótel sem blandar klassískri rómverskri upplifun við þægindi og er því gott val fyrir þá sem vilja vera miðsvæðis.
 

Staðsetning:
Grand Hotel Tiberio er staðsett í hjarta Rómar, helstu ferðamannastaðir eins og Piazza del Popolo, Spænsku tröppurnar og Via del Corso eru ekki langt undan.
Góðar almenningssamgöngur í nágrenninu, þar á meðal strætisvagnar og neðanjarðarlest.

Herbergi:
Hótelið býður upp á fjölbreytt úrval herbergja, allt frá klassískum tveggja manna herbergjum til svíta með auknum þægindum.
Öll herbergi eru með loftkælingu, flatskjá, öryggishólfi og ókeypis Wi-Fi.

Veitingastaðir og barir:
Morgunverður innifalinn í verði, boðið upp á ítalskan og alþjóðlegan mat.
Hótelbar þar sem hægt er að fá létta rétti og drykki.

Þjónusta og aðstaða:
Móttaka opin allan sólarhringinn.
Ferðaupplýsingar, leigubílabókanir og þjónusta við farangur.

Greiðslumáti
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.

Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

Fararstjórar

Gulla og Gussi
Hjónin Guðlaug Björg og Guðsteinn eða Gulla og Gussi eins og allir sem þau þekkja kalla þau eru miklir Ítalíu-farar. Þau elska Ítalíu og hafa þvælst um víða um landið og þekkja vel til.
 
Auk þess hafa þau farið áður með marga hópa fyrir Visitor þá hafa þau farið með hópa á Óperuhátíðina í Verona og á tónleika Andrea Bocelli Lajatico fæðingabæ Bocelli.
 
Þau hjónin eru alltaf glöð og kát og elska ekkert meira en að gera upplifun farþega Visitor sem allra mesta.
Frá 289.900 ISK
Skoða flug og hótel