Myndasafn
Ferðaáætlun
- Hreyfiferð til TenerifeKomdu í frábæra æfingaferð með Anítu 26 febrúar -07 mars 2027. Hressandi og skemmtileg ferð sem er tilvalin fyrir alla aldurshópa byrjendur sem lengra komna en mikilvægt að vera heilsuhraustur en við munum taka léttar æfingar utandyra þar sem notast er við eigin þyngd og teygjur og fara í gönguEr nokkuð sem slær því við að láta stressið og streituna líða úr sér í sólinni og koma endurnærður til baka en þessi ferð mun einkennast af góðum æfingum,skemmtun,hlátri ,tengslamyndun og svo ætlum við að sjálfsögðu að slaka á og að sjálfsögðu að njóta.Flogið er með Icelandair til Tenerife26.febrúar brottför frá Keflavík kl 10;00 lending kl 15:257. mars frá Tenerife kl 16:25 lending kl 21:55Dagskrá ferðarinnarDAGSKRÁ - birt með fyrirvara um breytingarDagur 1*Flug til áfangastaðar*stuttur fundur með Þjálfara kynnum okkur og förum yfir dagskráDagur 2*kl 07:30-10:30 morgunverður*09:30-10:30 léttar styrktaræfingar og teygjurKl 10:30-11:30 skoðunarganga um svæðiðDagur 3*kl 07:30-10:30 Morgunverður*kl 09:30-10:30 styrktar og kvið æfingarDagur 4*Kl 07:30-10:30 MorgunverðurKl 09:30 Tökum 5-7 km göngu og endum á Góðum teygjumSameiginlegur kvöldverðurDagur 5Frjáls dagurDagur 6Kl 07:30-10:30 MorgunverðurKl 09:30-10:00 styrktaræfingar með eigin þyngdKl 10:00-10:30 teygjurDagur 7*kl 07:30-10:30 Morgunverður9:30-10:30 StyrktaræfingarDagur 8*7:30-10:30 Morgunverður9:30-11:00 Styrktar og kviðæfingarDagur 9HeimferðINNIFALIÐFlug með sköttum23 kg innritaður farangurGisting með morgunverðiAkstur til og frá flugvelli erlendisþjálfari og íslensk fararstjórnVerð frá kr. 359.900 á mann miðað við tvo saman í herbergi.aukagjald vegna einbýlis kr. 166.900.GreiðslumátiHægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni. Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
Hótellýsing
Cleopatra Palace Hotel er glæsilegt 4 stjörnu staðsett við Playa del Camisón ströndina á suðurhluta Tenerife. Hótelið er hluti af hinu vinsæla Mare Nostrum Resort og býður upp á rólegt og afslappað andrúmsloft með rómverskum innblæstri, fallegum sundlaugargarði með beinum aðgangi að ströndinni.
Herbergin eru rúmgóð og björt með marmarabaðherbergjum, svölum eða verönd og mörg þeirra bjóða upp á útsýni yfir sundlaugina eða hafið. Gestir geta notið fjölbreyttrar þjónustu á borð við heilsulind, líkamsrækt, veitingastað, strandbar og glæsilegt morgunverðarhlaðborð sem hefur fengið mikið lof frá gestum.
Staðsetning hótelsins er einstaklega góð, í göngufæri frá verslunum, börum, veitingastöðum og afþreyingu í Playa de las Américas og Los Cristianos. Cleopatra Palace hentar sérstaklega vel þeim sem vilja sameina sól, sjó, þægindi og afslöppun í fallegu umhverfi Tenerife.
Aníta Ágústsdóttir
Aníta Ágústsdóttir er hóptímakennari í Sporthúsinu í Reykjanesbæ. Hún kennir opna hóptíma sem hafa notið mikilla vinsælda ásamt því að stýra lokuðu námskeiði sem heitir Bætt Heilsa en þar aðstoðar hún meðal annars fólk við að stíga sín fyrstu skref í heilsurækt og hefur það námskeið notið gríðarlegrar vinsælda. Aníta er menntaðu spinning- og hóptímakennari og er með kennararéttindi í bandvefslosun. Aníta hefur
brennandi áhuga á hreyfingu og heilsu og sjá fólk ná árangri í lífinu.
Aníta hefur farið með Heilsuferð áður til Benidorm,Tenerife og Kanrí sem hafa lukkast stórkostlega vel.