Golfferð: Golf del Sur á Tenerife 23. febrúar - 3. mars 2027

Verð frá299.900 ISK
Yfirlit
Fyrsta flokks golf og lúxusgisting í sólríkri paradís á Tenerife.

Ferðaáætlun

  • Golf del Sur og The Salmar - Tenerife
    Ferðin er 8 nætur frá þriðjudeginum 23. febrúar til miðvikudagsins 3. mars 2027.
     
    Flogið er með Icelandair
    23. febrúar: 10:00 - 15:25
    3. mars: 16:25 - 21:55
     
    Innifalið í verði ferðar:
    -Flug með ICELANDAIR.
    -Golf í 6 daga á Golf del Sur golfvellinum.
    -Gisting í 8 nætur á 4 stjörnu lúxushótelinu The Salmar – Adults Only 18+.
    -Morgunverður alla morgna.
    -Akstur til og frá flugvelli erlendis.
    -Akstur milli hótels og golfvallar alla golfdagana.
    -Íslensk fararstjórn.
     
    Ekki innifalið:
    Golfsett í flugi (hægt að kaupa sérstaklega).
     
    Golf del Sur golfvöllurinn er einn af þekktustu og glæsilegustu golfvöllum Tenerife og sannkölluð golfperla á sólríkri suðurströnd eyjunnar. Völlurinn er staðsettur í einstöku eldfjallalandslagi þar sem grænar golfbrautir, tignarleg pálmatré og stórbrotið útsýni yfir Atlantshafið skapa ógleymanlega umgjörð um golfleikinn. Völlurinn var upphaflega hannaður af Pepe Gancedo og síðar endurbættur af Manuel Piñero og sameinar skemmtilega hönnun, fjölbreyttar áskoranir og fyrsta flokks golfupplifun.
     
    18 holu golfvöllurinn (par 72) býður upp á fjölbreyttar og skemmtilegar brautir þar sem nákvæmni, góð höggstjórn og útsjónarsemi skipta máli. Einkennandi fyrir Golf del Sur eru hinar sérstæðu svörtu sandglompur úr eldfjallasandi sem mynda glæsilega andstæðu við grænar brautirnar. Fallegar vatnshindranir, vel hirtar flatir og stórbrotið útsýni yfir hafið setja einstakan svip á golfupplifunina. Völlurinn hefur einnig verið vettvangur alþjóðlegra golfmóta og er vel þekktur meðal kylfinga víðs vegar að úr heiminum.
     
    Golf del Sur hentar jafnt metnaðarfullum kylfingum sem vilja reyna á taktík og nákvæmni, sem og þeim sem vilja njóta golfhrings í fallegu og sólríku umhverfi. Sambland af fjölbreyttri hönnun, góðri aðstöðu og einstöku landslagi gerir völlinn að einum eftirsóttasta golfáfangastað Tenerife. Með sex golfdögum gefst frábært tækifæri til að kynnast vellinum vel og njóta golfleiks í góðum félagsskap.
     
    Við mælum með að taka golfbíl til að njóta vallarins til fulls og gera golfdaginn enn þægilegri.
     
    Tenerife er stærsta eyja Kanaríeyja og sannkölluð paradís fyrir þá sem vilja sameina sól, golf og afslöppun. Suðurströnd eyjunnar er þekkt fyrir milt og sólríkt loftslag allt árið um kring, fallegar strendur, stórbrotið eldfjallalandslag og fjölbreytta veitingastaði. Á Golf del Sur svæðinu ríkir notaleg og afslöppuð stemning þar sem falleg strandlengja, góðir veitingastaðir og útsýni yfir Atlantshafið skapa einstaka umgjörð um dvölina. Tenerife er fullkominn áfangastaður fyrir þá sem vilja skipta íslenskum vetri út fyrir sól, fyrsta flokks golf, góðan mat og notalega stemningu í einstöku umhverfi.
     
    Greiðslumáti
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 á farþega í bókunarvélinni.
     
    Við bjóðum einnig Netgíró og PEI.
    Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888 á milli kl. 09:00–16:00 virka daga og ganga frá greiðslu.
     
    Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
    Samkvæmt skilmálum Visitor ferðaskrifstofu er lágmarksþátttaka í allar ferðir.
     

Hótellýsing

The Salmar – Glæsilegt Adults Only hótel við Atlantshafið
 
The Salmar er glæsilegt og nýuppgert hótel á suðurströnd Tenerife, í einstakri staðsetningu við Atlantshafið og skammt frá Golf del Sur golfvellinum. Hótelið er eingöngu ætlað fullorðnum gestum og býður upp á fágaða og afslappaða stemningu þar sem nútímaleg hönnun, framúrskarandi þægindi og stórkostlegt sjávarútsýni fara einstaklega vel saman.
 
Hótelið er tilvalið fyrir kylfinga sem vilja sameina frábært golf og glæsilega gistingu í rólegu og fallegu umhverfi. Hér er lögð áhersla á notalega upplifun, góða þjónustu og afslöppun þar sem Atlantshafið myndar stórbrotna umgjörð um dvölina.
 
Herbergin eru björt, smekklega innréttuð og hönnuð með þægindi og vellíðan í fyrirrúmi. Nútímalegur stíll, fallegir litir og vönduð aðstaða skapa notalegt andrúmsloft og sjávarútsýnið setur einstakan svip á upplifunina. Hér er gott að vakna úthvíldur, njóta ljúffengs morgunverðar og undirbúa sig fyrir næsta golfhring.
 
Aðstaða hótelsins er fyrsta flokks og þegar kylfurnar eru komnar í hús tekur afslöppunin við. Glæsileg upphituð útisundlaug, þægileg sólbaðsaðstaða og stórkostlegt útsýni yfir Atlantshafið skapa fullkomna umgjörð til að njóta lífsins í sólinni.
 
Heilsulindaraðstaðan er sérstaklega skemmtileg viðbót fyrir kylfinga. Gestir geta slakað á í gufubaði (sauna), notið heits nuddpotts og hlaðið batteríin eftir góðan dag á golfvellinum. Á fjórðu hæð hótelsins er fallegt sólbaðssvæði þar sem tilvalið er að njóta friðsældarinnar og útsýnisins. Hótelið býður einnig upp á líkamsræktaraðstöðu fyrir þá sem vilja halda sér í formi á meðan dvölinni stendur.
 
Matur og drykkur skipa einnig stóran sess. Dagurinn byrjar á góðum morgunverði og á hótelinu er veitingastaður þar sem lögð er áhersla á ferskt hráefni og bragðgóða rétti. Við sundlaugina er hægt að njóta léttra veitinga og svalandi drykkja og á The Game Room Sports Bar er notalegt að hittast eftir golfdaginn, fá sér kokteil eða glas af góðu víni og rifja upp bestu högg dagsins – og kannski þau sem hefðu mátt fara aðeins betur.
 
The Salmar býður upp á allt sem þarf fyrir vel heppnaða golfferð – glæsilega gistingu, frábæra sundlauga- og heilsulindaraðstöðu, góða veitingastaði og rólega stemningu við Atlantshafið, ásamt Golf del Sur golfvellinum í næsta nágrenni.
 
Fullkomin blanda af golfi, afslöppun og góðum félagsskap í einu fallegasta umhverfi Tenerife!

 

Fararstjórar

Fararstjórar í þessari golfferð til Cascais eru Lóa og Davíð.
 
Lóa starfar hjá Visitor og hefur yfirumsjón með skipulagningu ferðarinnar.
 
Þau eru bæði miklir golfarar og hafa spilað golf um árabil, bæði heima og erlendis. Þau þekkja golfvöllinn vel af eigin reynslu og hafa sjálf spilað hann, sem gerir þeim kleift að miðla persónulegri innsýn, góðum ráðum og þekkingu á vellinum og svæðinu.
 
Uppáhaldsbraut Davíðs er The Lakes, en hjá Lóu er það Atlantic Ocean. Okkur hlakkar til að sjá hvaða braut verður í uppáhaldi hjá ykkur á þessum magnaða velli, Onyria Quinta da Marinha.
 
Markmið okkar er að tryggja afslappaða, skemmtilega og eftirminnilega golfferð í fallegu umhverfi – bæði á og utan vallar.
 
Verðdæmi 299.900 ISK