Golfferð: Hacienda Del Alamo á Spáni - október 2026

Frá299.900 ISK
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • GOLFFERÐ TIL SPÁNAR
    Golfhotel and resort Hacienda Del Alamo.
     
    Ferðin er vikuferð frá 3. til 10. október 2026.
     
    Flogið er með Icelandair
    3. október: 08:20 - 14:50
    10. október: 15:50 - 18:35
     
    Innifalið í verði ferðar:
    • Flug með ICELANDAIR.
    • Innrituð 23 kg ferðataska, eitt innritað golfsett allt að 23 kg og léttur handfarangur.
    • Einn hringur á dag - samtals 5 hringir.
    • Gisting með morgunverði.
    • Akstur til og frá flugvelli erlendis.
    • Íslensk fararstjórn.
     
    Lágmarksþátttaka er á þessari ferð og áskilur Visitor sér rétt til að fella niður ferðina náist ekki næg þátttaka.
     
    Greiðslumáti
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
     
    Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
    Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
    á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
     
    Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
     

     

Hótellýsing

Ona Hacienda del Álamo Golf & Resort – Murcia, Spánn
 
Draumastaður fyrir þá sem elska sól, slökun og fyrsta flokks golf. Hér sameinast lúxus og rólegheit í frábæru umhverfi á sólríkum stað rétt fyrir utan hina líflegu Murcia-borg.
 
Glæsilegar íbúðir og herbergi með rúmgóðum herbergjum, svölum og nútímalegum þægindum
 
Heillandi golfvöllur hannaður fyrir kylfinga á öllum getustigum, með æfingasvæði og par3 velli.
 
Veitingastaðir og barir á staðnum sem bjóða bæði spænska og alþjóðlega rétti.
 
Hér færðu hinn klassíska golf-lífsstíl á sólríkum spænskum stað – golf, góða þjónustu, hvíld og upplifun sem endurnærir.

Fararstjóri

Freyr Hólm

Freyr býr á svæðinu, við hliðina á hótelinu, vel talandi á spænsku og því öllum hnútum kunnugur á þessu svæði. Freyr er vel þekktur innan golfsins á Íslandi en hann var um tíma framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar.

Frá 299.900 ISK
Skoða flug og hótel