Golfferð: Hacienda Del Alamo á Spáni - september 2026

Frá299.900 ISK
Yfirlit
Tour Overview goes here

Ferðaáætlun

  • Golfskóli Visitor
    Golfhotel and resort Hacienda Del Alamo.
     
    Ferðin er vikuferð frá 26. september til 3. október 2026
     
    Flogið er með Icelandair
    26. september  08:20 - 14:50
    3. október: 15:50 - 18:35
     
    Innifalið í verði ferðar:
    • Flug með ICELANDAIR.
    • Innrituð 23 kg ferðataska, eitt innritað golfsett allt að 23 kg og léttur handfarangur.
    • Ótakmarkað golf
    • Gisting með morgunverði.
    • Akstur til og frá flugvelli erlendis.
    • Íslensk fararstjórn.

     

    Santa Elena golfvöllurinn í Hacienda del Alamo, Murcia
    Santa Elena er hannaður af þekkta golfarkitektinum Dave Thomas, völlurinn er einn lengsti golfvöllur Spánar og teygir sig yfir 6.700 metra, glæsilegt landslag með öldóttum brautum, glitrandi vötnum, fullvöxnum pálmatrjám, ólífulundum og stórkostlegu útsýni yfir fjöllin. 
     
    Par-72 völlurinn hentar kylfingum af öllum getustigum, þar sem mörg teigasett stjórna lengd vallarins, völlurinn hefur verið vandlega hannaður til að skora á reynda kylfinga en samt vera skemmtilegur og aðgengilegur fyrir kylfinga á öllum getustigum.
     
    Það sem greinir Santa Elena sannarlega frá öðrum utan við lengdina eru breiðar brautir og fjöldi sandglompa. Breiðar brautir veita öryggi frá teig, á meðan vel staðsettar glompur og einstaka vatn hræða þig aðeins, stórar og góðar upphækkaðar flatir umbuna góðri kylfustjórnun og nákvæmum höggum, því hér er betra að spila golf með skynsemi.
     
    Auk 18 holu keppnisvallarins geta kylfingar notið góðs af æfingaaðstöðu á svæðinu, þar á meðal æfingasvæði, púttflötum, æfingasvæðum fyrir stutt spil og sérstökum sex holu æfingavelli sem samanstendur af 3 x par3 holum og 3 x par4 holum. 
     
    Þessi fyrsta flokks aðstaða gerir Santa Elena að kjörnum áfangastað fyrir byrjendur, almennan kylfing sem og alvöru kylfinga sem vilja bæta leik sinn.
    Ótakmarkað golf er innifalið í ferðum okkar með golfbíl, allt golf umfram fyrirfram bókaðar 18 holur er háð bókunarstöðu vallarins á degi hverjum, þannig að ekki er fyrirfram hægt að tryggja golf umfram 18 holur nema bókað og greitt sé fyrir það fyrirfram.
     
    Klúbbhús vallarins stendur við hótelið, þaðan er 1 mínútu gangur á milli, geymsla er fyrir golfsett í bílakjallara klúbbhússins, klúbbhúsið býður upp á afbragðs matseðil til að fylla á orkuna eftir eða milli hringja.
     
    Hacienda del Álamo Golf & Resort - Murcia, Spánn
    Í aðeins 75 mín akstri frá Alicante alþjóðaflugvellinum og 15 mínútna akstri frá Murcia alþjóðaflugvellinum finnur þú þennan draumastað fyrir þá sem elska sól, slökun og fyrsta flokks golf. Hér sameinast lúxus og rólegheit í frábæru umhverfi á sólríkum stað rétt fyrir utan hinar líflegu borgir Murcia og Cartagena. Það tekur einungis um 30 mínútur að keyra til beggja borga, sem báðar búa yfir frábærum veitingastöðum, skemmtilegum gömlum miðbæjum og mikilli sögu sem vert er að kynna sér. Þá eru strendurnar við Mazzarón og Mar Menor einnig í 25-30 mínútna akstursfjarlægð.
     
    Nágrennið 
    Við resortið fyrir utan hótelið og klúbbhúsið má finna Rangla Punjab, verulega góðan indverskan stað, Pam´s kitchen sem býður upp á AsianFusion og er veitingastaður á heimsmælikvarða, Pam´s býður einnig upp á Tapas á barsvæðinu, Manolo´s reiðir fram spænska tapas stemningu og Fairways er breskur miðjarðarhafs veitingastaður sem meðal annars státar af Pie kvöldi á miðvikudögum þar sem unaðslegt Steak and Guinness Pie er í boði, Fish & Chips á föstudögum osfrv.
    Auk þeirra eru þrír barir Lochy´s, La Plaza og Jeff´s Casita á svæðinu sem bjóða upp á ýmis konar samsuðu af góðum mat og að lokum er það “kaffihúsið” El Corner sem býður upp á brauðmeti í föstu sem og fljótandi formi. Einnig eru margir góðir veitingastaðir í bæði Murcia og Cartagena og einnig frábærir veitingastaðir í nærliggjandi þorpum, Brutal Wine Bar í Fuente Alamo, Los Cazadores í Corvera og El Alquimista í Condado de Alhama.

    Greiðslumáti
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
     
    Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
    Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
    á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
     
    Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
    Skv. skilmálum Visitor ferðaskrifstofu er lágmarksþáttaka í allar ferðir.

     

     

Hótellýsing

Holiday Highlights list goes here

Hótellýsing

Ona Hacienda del Álamo Golf & Resort – Murcia, Spánn
 
Draumastaður fyrir þá sem elska sól, slökun og fyrsta flokks golf. Hér sameinast lúxus og rólegheit í frábæru umhverfi á sólríkum stað rétt fyrir utan hina líflegu Murcia-borg.
 
Glæsileg rúmgóð herbergi, svölum og nútímalegum þægindum.
 
Heillandi golfvöllur hannaður fyrir kylfinga á öllum getustigum, með æfingasvæði og par3 velli.
 
Veitingastaðir og barir á staðnum sem bjóða bæði spænska og alþjóðlega rétti.
 
Hér færðu hinn klassíska golf-lífsstíl á sólríkum spænskum stað – golf, góða þjónustu, hvíld og upplifun sem endurnærir.
Glæsileg rúmgóð herbergi, svölum og nútímalegum þægindum.
 

Fararstjóri: Freyr Hólm

Freyr býr á svæðinu, við hliðina á hótelinu, vel talandi á spænsku og því öllum hnútum kunnugur á þessu svæði.
 
Freyr er vel þekktur innan golfsins á Íslandi en hann var um tíma framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar.
 
Umfram allt er Freyr léttur, kátur, ljúfur og úrræðagóður við allar aðstæður. Einnig er hann hinn þokkalegasti kylfingur :)
Frá 299.900 ISK