Myndasafn
Ferðaáætlun
- Quinta Da Marinha Golf7 nátta ferð 25.apríl - 02.mai 2027.Flogið er með Icelandair25.september: 08:30 - 13:502.maí: 15:00 - 18:25Innifalið í verði ferðar:
- Flug með ICELANDAIR.
- Innrituð 23 kg ferðataska.
- Ótakmarkað golf í 5 daga.
- Gisting með morgunverði.
- Aðgangur að spa og heilsulind hótelsins.
- Akstur til og frá flugvelli erlendis.
- Íslensk fararstjórn.
Quinta da Marinha Golfvöllurinn er einn af glæsilegustu golfvöllum Portúgals og er sannkölluð perla við hina stórbrotnu Atlantshafsströnd í Cascais, aðeins um 30 mínútna akstur frá Lissabon. Völlurinn var hannaður af golfgoðsögninni Robert Trent Jones Sr. og sameinar krefjandi hönnun, stórkostlegt landslag og fyrsta flokks golfupplifun.18 holu meistaravöllurinn (par 71) liggur um fallega furuskóga, glæsilegar vatnshindranir og vel varðar flatir, þar sem hver hola býður upp á nýja áskorun. Frægust er 3. holan, þar sem útsýnið yfir Atlantshafið skapar eina eftirminnilegustu golfupplifun Portúgals. Víða á vellinum njóta kylfingar einnig stórbrotins útsýnis yfir Sintra-fjöllin sem setja einstakan svip á umhverfið.Quinta da Marinha hentar jafnt metnaðarfullum kylfingum sem vilja reyna á taktík og nákvæmni, sem og þeim sem vilja njóta golfhrings í einstöku náttúruumhverfi. Sambland af glæsilegri hönnun, framúrskarandi aðstöðu og ógleymanlegu sjávarútsýni gerir völlinn að einum vinsælasta golfáfangastað Lissabonsvæðisins.Við mælum með að taka golfbíl til að njóta vallarins til fulls og gera golfdaginn enn þægilegri.Cascais er glæsilegur strandbær við Atlantshafið þar sem saman fara afslöppuð strandstemning, fágaður lúxus og framúrskarandi matur. Bærinn býður upp á fallega strandlengju, líflega smábátahöfn og fjölbreytta veitingastaði þar sem ferskt sjávarfang og portúgalskir bragðtónar njóta sín í hávegum. Cascais er fullkominn áfangastaður fyrir þá sem vilja sameina sól, sjó, góðan mat og notalega stemningu í einstöku umhverfi aðeins skammt frá Lissabon..GreiðslumátiHægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.Skv. skilmálum Visitor ferðaskrifstofu er lágmarksþáttaka í allar ferðir.
Hótellýsing
Onyria Marinha Boutique Hotel er glæsilegt fimm stjörnu lúxushótel sem stendur við hinn vinsæla Quinta da Marinha golfvöll, aðeins örstutt frá strandbænum Cascais.
Hótelið sameinar fyrsta flokks þjónustu, nútímalegan glæsileika og einstaka aðstöðu fyrir kylfinga sem vilja njóta þess besta sem Portúgal hefur upp á að bjóða.
Á hótelinu eru rúmgóð og glæsilega innréttuð herbergi. Gestir njóta úrvals veitinga, notalegs bars, glæsilegrar heilsulindar og sundlaugarsvæða sem skapa fullkomið umhverfi til afslöppunar eftir golfhringinn, ath, það eru 2 sundlaugasvæði á hótelinu, eitt við Spa og svo annað með sólbekkjum í garðinum.
Samspil hótelsins og golfvallarins gerir Onyria Marinha að einum eftirsóttasta áfangastað kylfinga á svæðinu. Mikilvægt er að hafa í huga að þetta er Onyria Marinha Boutique Hotel sem er staðsett við golfvöllinn sjálfan og býður upp á mun hærri gæðastaðal og betri staðsetningu fyrir kylfinga en Quinta Da Marinha
Fararstjórar: Lóa og Davíð
Fararstjórar í þessari golfferð til Cascais eru Lóa og Davíð.
Lóa starfar hjá Visitor og hefur yfirumsjón með skipulagningu ferðarinnar.
Þau eru miklir golfáhugamenn og hafa spilað golf um nokkurt skeið, bæði heima og erlendis.
Þau þekkja golfvöllinn á svæðinu vel eftir eigin reynslu og hafa sjálf spilað hann sem gerir þeim kleift að miðla persónulegri innsýn, góðum ráðum og þekkingu á svæðinu.
Markmið þeirra er að tryggja afslappaða, skemmtilega og eftirminnilega golfferð
– bæði á og utan vallar.