Ferðaáætlun
- Golfskóli VisitorGolfhotel and resort Hacienda Del Alamo.Ferðin er vikuferð fá 2. maí - 9. maí 2026Velkomin í golfskólann okkar, þar sem kylfingum, á byrjunarstigi og á sínum fyrstu skrefum golfsins er boðið að fínpússa færni sína, bæta leik sinn og njóta upplifunar í heimi golfsins, í skóla sem veitir persónulega kennslu og einstaklingsmiðaða nálgun.Við leggjum sérstaka áherslu á að bjóða nýliðum og þeim sem eru styttra á veg komnir til okkar velkomna.Íslenskur PGA kennari sér um kennsluna.Æft fyrir hádegi og spilað á Par 3 vellinum eftir hádegi.SUNNUDAGUR 3. MAÍNýliðafræðslaFarið verður yfir dagskrá golfskólans og hún kynnt.Stutt kynning um helstu reglur og umgengni á golfvellinum.MÁNUDAGUR 4. MAÍ09:00 - 12:00Grunnatriði golfsins.Áhersla á grip, líkamsstöðu og sveiflutækni.Farið yfir grunntækni í að pútta og vippa.Æfing á æfingasvæði, nauðsynlegar aðferðir til að ná nákvæmni af teig.ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ09:00 - 12:00Pútt og golfhögg.Púttæfingar, áhersla á uppstillingu, hraða og fjarlægðarstjórnun.Stefna í löngum leik, aðferð við högg og kylfuval, læra að stjórna mismunandi legu og aðstæðum.MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ09:00 - 12:00Dýpri nálgun á tækni og leik á vellinum.Að velja rétta höggið og ná tökum á því að flýja úr glompum.FIMMTUDAGUR 7. MAÍ09:00 - 12:00Yfirferð á gripi, líkamsstöðu og sveiflutækni.Færni upprifjun, endurskoðun og styrking lykilhugtaka, einstaklingsbundin endurgjöf.Kennari og leiðbeinandi gefa leiðbeiningar á vellinum, hagnýtar upplýsingar um hvernig skal hugsa höggin, þar á meðal að lesa flatirnar og hvar má ég missa boltann.FÖSTUDAGUR 8. MAÍ09:00 - 12:00Kylfuval og mismunandi tegundir af höggum við mismunandi aðstæður.Læra hvernig á að stjórna mismunandi legu og aðstæðum, hvaða kylfur á að nota.Hér lækkum við skorið, leiktækni fyrir vipp og pútt, læra nauðsynlegar aðferðir fyrir nákvæm högg og grunninn að lægra skori.Við lok kennsludags bregðum við á leik og bjóðum þeim sem vilja og treysta sér til að taka þátt í 9 holu golfmóti.LAUGARDAGUR 9. MAÍHeimferðardagur.Þessi dagskrá tryggir að þátttakendur fari með bætta færni, meira sjálfstraust og ógleymanlegar minningar frá dvöl sinni á Hacienda del Alamo.Innifalið í verði ferðar:
- Flug með ICELANDAIR.
- Innrituð 23 kg ferðataska, eitt golfsett allt að 23 kg og léttur handfarangur.
- Gisting með morgunverði.
- Akstur til og frá flugvelli erlendis.
- Golfskólinn (kennsla, aðgangur að æfingasvæði og hringir á par 3 vellinum).
- Íslensk fararstjórn.
*Golfskóli Visitor er ætlaður þeim sem eru nýliðar eða með forgjöf 30 plús.Þessi ferð er ekki að henta þeim sem eru undir 25 í forgjöf.
Hótellýsing
Ona Hacienda del Álamo Golf & Resort – Murcia, Spánn
Draumastaður fyrir þá sem elska sól, slökun og fyrsta flokks golf. Hér sameinast lúxus og rólegheit í frábæru umhverfi á sólríkum stað rétt fyrir utan hina líflegu Murcia-borg.
Glæsilegar íbúðir og herbergi með rúmgóðum herbergjum, svölum og nútímalegum þægindum
Heillandi golfvöllur hannaður fyrir kylfinga á öllum getustigum, með æfingasvæði og par3 velli.
Veitingastaðir og barir á staðnum sem bjóða bæði spænska og alþjóðlega rétti.
Hér færðu hinn klassíska golf-lífsstíl á sólríkum spænskum stað – golf, góða þjónustu, hvíld og upplifun sem endurnærir.
Fararstjóri
Jón Þorsteinn Hjartarson er yfirkennari Golfskóla Visitor á Spáni.
Jón er PGA kennara útskrifaður árið 2009 með viðamikla reynslu af kennslu úr barna-, unglinga- og afreksstarfi.
Jón starfaði m.a í 7 ár hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.