Golfskóli Visitor á Spáni - september

Frá299.900 ISK
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • Golfskóli Visitor
    Golfhotel and resort Hacienda Del Alamo.
     
    Ferðin er vikuferð fá 26.september - 3. október 
     
    Velkomin í golfskólann okkar, þar sem kylfingum, á byrjunarstigi og á sínum fyrstu skrefum golfsins er boðið að fínpússa færni sína, bæta leik sinn og njóta upplifunar í heimi golfsins, í skóla sem veitir persónulega kennslu og einstaklingsmiðaða nálgun.
     
    Við leggjum sérstaka áherslu á að bjóða nýliðum og þeim sem eru styttra á veg komnir til okkar velkomna.
     
    Íslenskur PGA kennari sér um kennsluna.
    Æft fyrir hádegi og spilað á 6 holu Par 3 vellinum eftir hádegi.
     
    SUNNUDAGUR 27.september
    Nýliðafræðsla
    Farið verður yfir dagskrá golfskólans og hún kynnt.
    Stutt kynning um helstu reglur og umgengni á golfvellinum.
     
    MÁNUDAGUR 28.september
    Grunnatriði golfsins.
    Áhersla á grip, líkamsstöðu og sveiflutækni.
    Farið yfir grunntækni í að pútta og vippa.
    Æfing á æfingasvæði, nauðsynlegar aðferðir til að ná nákvæmni af teig.
     
    ÞRIÐJUDAGUR 29.september
    Pútt og golfhögg.
    Púttæfingar, áhersla á uppstillingu, hraða og fjarlægðarstjórnun.
    Stefna í löngum leik, aðferð við högg og kylfuval, læra að stjórna mismunandi legu og aðstæðum.
     
    MIÐVIKUDAGUR 30. september
    Dýpri nálgun á tækni og leik á vellinum.
    Að velja rétta höggið og ná tökum á því að flýja úr glompum.
     
    FIMMTUDAGUR 1. október
    Yfirferð á gripi, líkamsstöðu og sveiflutækni.
    Færni upprifjun, endurskoðun og styrking lykilhugtaka, einstaklingsbundin endurgjöf.
    Kennari og leiðbeinandi gefa leiðbeiningar á vellinum, hagnýtar upplýsingar um hvernig skal hugsa höggin, þar á meðal að lesa flatirnar og hvar má ég missa boltann.
     
    FÖSTUDAGUR 2. október
    Kylfuval og mismunandi tegundir af höggum við mismunandi aðstæður.
    Læra hvernig á að stjórna mismunandi legu og aðstæðum, hvaða kylfur á að nota.
    Hér lækkum við skorið, leiktækni fyrir vipp og pútt, læra nauðsynlegar aðferðir fyrir nákvæm högg og grunninn að lægra skori.
     
    Við lok kennsludags bregðum við á leik og bjóðum þeim sem vilja og treysta sér til að taka þátt í 6 holu golfmóti.
     
    LAUGARDAGUR 3. október
    Heimferðardagur.
     
    Þessi dagskrá tryggir að þátttakendur fari með bætta færni, meira sjálfstraust og ógleymanlegar minningar frá dvöl sinni á Hacienda del Alamo.
     
    Innifalið í verði ferðar:
    Flug með ICELANDAIR.
    Innrituð 23 kg ferðataska, eitt golfsett allt að 23 kg og léttur handfarangur.
    Gisting með morgunverði.
    Akstur til og frá flugvelli erlendis.
    Golfskólinn (kennsla, aðgangur að æfingasvæði og hringir á par 3 vellinum).
    Íslensk fararstjórn.
     
    *Golfskóli Visitor er ætlaður þeim sem eru nýliðar eða með forgjöf 30 plús.
    Þessi ferð er ekki að henta þeim sem eru undir 25 í forgjöf.
     

Hótellýsing

Ona Hacienda del Álamo Golf & Resort – Murcia, Spánn
 
Draumastaður fyrir þá sem elska sól, slökun og fyrsta flokks golf. Hér sameinast lúxus og rólegheit í frábæru umhverfi á sólríkum stað rétt fyrir utan hina líflegu Murcia-borg.
 
Glæsilegar íbúðir og herbergi með rúmgóðum herbergjum, svölum og nútímalegum þægindum
 
Heillandi golfvöllur hannaður fyrir kylfinga á öllum getustigum, með æfingasvæði og par3 velli.
 
Veitingastaðir og barir á staðnum sem bjóða bæði spænska og alþjóðlega rétti.
 
Hér færðu hinn klassíska golf-lífsstíl á sólríkum spænskum stað – golf, góða þjónustu, hvíld og upplifun sem endurnærir.

Kennari

Jón Þorsteinn Hjartarson
Jón er PGA kennara útskrifaður árið 2009 með viðamikla reynslu af kennslu úr barna-, unglinga- og afreksstarfi.
Jón starfaði m.a í 7 ár hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.

Fararstjóri

Freyr Hólm
Frá 299.900 ISK