Spánn
, Benidorm

Hotel Madeira Centro

Yfirlit

Hotel Madeira Centro er 4 stjörnu hótel á Benidorm sem hentar vel fyrir fjölskyldur. Um það bil 5 mínútna gangur er í næsta súpermarkað frá hótelinu og einungis 200 metrar á Levante ströndina. Á hótelinu eru 2 sundlaugar ein inni og önnur úti ásamt heitum potti. Leikvöllur er fyrir börn í garðinum og snakk bar. Einnig er þakverönd með miklu og fallegu útsýni yfir ströndina. Heilsulind er á hótelinu sem hægt er að fara í gegn gjaldi. Skemmtun er á kvöldin með lifandi tónlist. 

 

Staðsetning

Hótellýsing

Hotel Madeira Centro er 4 stjörnu hótel á Benidorm sem hentar vel fyrir fjölskyldur. 

Um það bil 5 mínútna gangur er í næsta súpermarkað frá hótelinu og einungis 200 metrar á Levante ströndina. Á hótelinu eru 2 sundlaugar ein inni og önnur úti ásamt heitum potti. Leikvöllur er fyrir börn í garðinum og snakk bar. Einnig er þakverönd með miklu og fallegu útsýni yfir ströndina. Heilsulind er á hótelinu sem hægt er að fara í gegn gjaldi. Skemmtun er á kvöldin með lifandi tónlist. 

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, bar og kaffihús, þemakvöldverður er einu sinni í viku. Í boði eru standard herbergi með eða án svala, superior herbergi með eða án svala, fjölskylduherbergi og svíta með svölum. Í öllum herbergjum er te/kaffivél, sjónvarp, sími og þráðlaust net. Þetta er vel staðsett og gott 4 stjörnu hótel fyrir bæði fjölskyldur og pör. Frá flugvellinum í Alicante er um það bil 47 km á Hotel Madeira Centro.


Bóka