Kvennagolfferð- Da Marinha í Cascais 14. -21. september 2027

Verð frá369.900 ISK
Yfirlit
Fyrsta flokks golf og lúxusgisting í einu fallegasta umhverfi Portúgals.

Ferðaáætlun

  • Quinta Da Marinha Golf - Cascais Portúgal
    Ferðin er 7 nætur frá þriðjudeginum 14. september til þriðjudagsins 21. september 2027.
     
    Við bjóðum upp á glæsilega golfferð fyrir konur til Portúgals þar sem golf, vellíðan, persónuleg efling og góður félagsskapur fara saman.
     
    Ferðin er hugsuð fyrir konur á öllum aldri sem hafa gaman af golfi og vilja njóta þess að gefa sér tíma fyrir sjálfar sig, kynnast nýjum konum og eiga saman góða viku í fallegu umhverfi. Hvort sem þú kemur ein, með vinkonu eða vinkonuhópi bíður þín vika full af samveru. Við ætlum að hlæja, læra, spila golf, njóta lífsins og koma heim með fullt af góðum minningum, nýja orku og kannski nokkrar nýjar vinkonur í farteskinu.
     
    Dagskráin sameinar 18 holu golf alla daga, skipulagðar stundir með áherslu á vellíðan undir leiðsögn Örnu, skemmtilegt golfmót og notalega samveru.
     
    Ein vika með fullt af golfi, vellíðan, hlátri og góðum minningum.
    • Þín vika - þinn tími - þín upplifun -
     
    Ferðaáætlun
    Quinta Da Marinha Golf - Cascais Portúgal 
     
    Flogið er með Icelandair
    14. september
    Brottför frá Keflavik kl: 08.30 lending í Lissabon kl: 13:50
    21. september 
    Brottför frá Lissabon kl:15:00 lending í Keflavik kl: 18:25
     
    Innifalið í verði ferðar:
    Flug með ICELANDAIR.
    Innrituð 23 kg ferðataska 
    6 golfhringir
    Glfbíll
    Gisting með morgunverði.
    Aðgangur að spa og heilsulind hótelsins.
    Akstur til og frá flugvelli erlendis.
    Íslensk fararstjórn.
     
    Ekki innifalið:
    flutningur á golfsetti
     
    Quinta da Marinha Golfvöllurinn er einn af glæsilegustu golfvöllum Portúgals og er sannkölluð perla við hina stórbrotnu Atlantshafsströnd í Cascais, aðeins um 40 mínútna akstur frá Lissabon. Völlurinn var hannaður af golfgoðsögninni Robert Trent Jones Sr. og sameinar krefjandi hönnun, stórkostlegt landslag og fyrsta flokks golfupplifun.
     
    18 holu meistaravöllurinn (par 71) liggur um fallega furuskóga, glæsilegar vatnshindranir og vel varðar flatir, þar sem hver hola býður upp á nýja áskorun. Frægust er 3. holan, þar sem útsýnið yfir Atlantshafið skapar eina eftirminnilegustu golfupplifun Portúgals. Víða á vellinum njóta kylfingar einnig stórbrotins útsýnis yfir Sintra-fjöllin sem setja einstakan svip á umhverfið.
     
    Quinta da Marinha völlurinn hentar jafnt metnaðarfullum kylfingum sem vilja reyna á taktík og nákvæmni, sem og þeim sem vilja njóta golfhrings í einstöku náttúruumhverfi. Sambland af glæsilegri hönnun, framúrskarandi aðstöðu og ógleymanlegu sjávarútsýni gerir völlinn að einum vinsælasta golfáfangastað Lissabon svæðisins.
     
    Cascais er glæsilegur strandbær við Atlantshafið þar sem saman fara afslöppuð strandstemning, fágaður lúxus og framúrskarandi matur. Bærinn býður upp á fallega strandlengju, líflega smábátahöfn og fjölbreytta veitingastaði þar sem ferskt sjávarfang og portúgalskir bragðtónar njóta sín í hávegum. 
     
    Greiðslumáti
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
     
    Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
    Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888 á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.
     
    Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.  Skv. skilmálum Visitor ferðaskrifstofu er lágmarksþáttaka í allar ferðir.
     
     

     

Hótellýsing

Kimpton Quinta da Marinha er glæsilegt fimm stjörnu hótel í fallegu og gróðursælu umhverfi Quinta da Marinha, skammt frá hinum heillandi strandbæ Cascais. Hótelið hefur verið endurnýjað í nútímalegum og fáguðum stíl þar sem þægindi, góð þjónusta og afslöppuð portúgölsk stemning fara einstaklega vel saman.
 
Herbergin eru rúmgóð, björt og smekklega innréttuð og öll með einkasvölum þar sem hægt er að njóta útsýnis yfir grænt og fallegt umhverfið. Aðstaða hótelsins er fyrsta flokks og þegar kylfurnar eru komnar í hús tekur afslöppunin við. Gestir geta notið inni- og útisundlaugar, líkamsræktaraðstöðu og Natur Spa, þar sem tilvalið er að slaka á og hlaða batteríin fyrir næsta golfhring.
 
Matur og drykkur skipa einnig stóran sess. Á AO PONTO er lögð áhersla á nútímalega portúgalska matargerð, ferskan fisk og sjávarfang ásamt girnilegum réttum af grillinu. FICA! er svo líflegur og afslappaður bar þar sem tilvalið er að hittast að golfdegi loknum, fá sér kokteil eða glas af góðu portúgölsku víni og rifja upp bestu högg dagsins – og kannski þau sem hefðu mátt fara aðeins betur.
 
Kimpton Quinta da Marinha býður upp á allt sem þarf fyrir vel heppnaða golfferð – glæsilega gistingu, frábæra aðstöðu og golfið í næsta nágrenni, ásamt góðum mat, afslöppun og notalegri portúgalskri stemningu að golfdegi loknum.
 

Fararstjórar

Rósa Björk og Arna

Ég heiti Rósa Björk og hef brennandi áhuga á golfi, skíðum, ferðalögum, útivist og öllu því sem stuðlar að góðri heilsu og vellíðan. 

 

Ég byrjaði í golfi árið 2018 og hef verið dugleg að spila golfvelli á Íslandi sem og á erlendri grundu. Ég er dugleg að taka þátt í golfmótum, en spila mest til gamans með fjölskyldu og vinum.

 

Ég hef gaman af því að kynnast nýju fólki og finnst fátt skemmtilegra en að safna góðum minningum með skemmtilegu fólki. Sem fararstjóri legg ég áherslu á að allir finni sig velkomna. Að halda skipulagi en um leið að stemmingin sé afslöppuð, hlý og skemmtileg. Það eiga allir að geta notið sín, hvort sem þeir eru að slá draumahöggið á golfvellinum eða njóta góðra samverustunda utan hans.

 

Verðdæmi 369.900 ISK