Myndasafn
Ferðaáætlun
- Enski boltinnUPPSELT
!! TILBOÐ - FLUG OG MIÐI Á LEIKINN !!
Aðeins örfáir pakkar í boði á þessu verði á þennan risaleik.Liverpool - Manchester United - RISALEIKUR ÁRSINSFlugið er á föstudeginum 20. nóvember - mánudagsins 23. nóvember 2026Leikurinn fer fram sunnudaginn 22. nóvember 2026.
Verð á mann kr. 149.900Innifalið:- Flug með Jet2 ásamt sköttum.- 22 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur.- Miði á leikinn.
Flugið með JET2
LS1724 Keflavík - ManchesterBrottför kl. 12.30 - Lending kl. 15.15.LS1723 Manchester - KeflavíkBrottför kl. 08:35 - Lending kl. 10:30.
Í þessari ferð er enginn fararstjóri og farþegar alfarið á eigin vegum.SÆTIN Á ANFIELDSætin okkar eru í nýju stúkunni, Anfield Road Stand, sem eru merkt dökk fjólublátt á myndinni hér fyrir ofan.Þeir farþegar okkar sem hafa verið þarna tala vel um sætin, útsýnið og stemninguna enda splunkuný stúka.
Reynt er eftir fremsta megni að fólk sitji saman. Tveir eða fjórir saman er oftast lítið mál, þrír eða fimm saman getur reynst erfitt og því er aldrei lofað 100% fyrirfram. Þurfi að slíta fólk í sundur er þó alltaf reynt að koma fólki í sama hólf með sama inngang en því er þó ekki hægt að lofa fyrirfram. Óski farþegar eftir sérstökum sætum eða vilja kaupa uppfærslu er reynt að koma á móts við þær óskir, gegn þeim kostnaði sem það kostar en ekki hægt að lofa því 100%.GREIÐSLUMÁTIFullgreiða þarf pakkann þar sem stutt er í brottför.Við bjóðum Netgiró og PEI.Ábending til ferðalanga til Bretlands:ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.Hér er allt um þetta: www.visitor.is/etaesta
Hótellýsing
Í þessari ferð er hótel ekki innifalið í pakkanum.