Liverpool - Newcastle 9. - 12. apríl

Frá249.900 ISK
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • Liverpool vs Newcastle
    Ferðin er frá föstudeginum 9. apríl til mánudagsins 12. apríl 2027.
     
    Óstaðfestur leikdagur er laugardaginn 10. apríl 2027.
    Enska knattspyrnusambandið setur alla leiki á laugardaga en staðfestir leikdaginn c.a. 7 vikum fyrir leikdag og þá geta leikir færst milli daga.
     
    Innifalið í pakkaferðinni:
    - Flug með ICELANDAIR ásamt sköttum.
    - 23 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur.
    - Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli.
    - Miði á leikinn.
    - Akstur til og frá flugvelli.
    - Íslensk fararstjórn.
     
    SÆTIN Á ANFIELD
    Sætin okkar eru í nýju stúkunni, Anfield Road Stand, sem eru merkt dökk fjólublátt á myndinni hér fyrir ofan.
    Þeir farþegar okkar sem hafa verið þarna tala vel um sætin, útsýnið og stemninguna enda splunkuný stúka.
    Þeir sem óska eftir uppfærslu á miðum í dýrara svæði skulu hafa samband við Visitor ferðaskrifstofu í síma 578 9888 eða á netfangið fyrirspurn@visitor.is.
    Uppfærslur eru háðar framboði og ekki alltaf í boði.
     
    Reynt er eftir fremsta megni að fólk sitji saman. Tveir eða fjórir saman er oftast lítið mál, þrír eða fimm saman getur reynst erfitt og því er aldrei lofað 100% fyrirfram. Þurfi að slíta fólk í sundur er þó alltaf reynt að koma fólki í sama hólf með sama inngang en því er þó ekki hægt að lofa fyrirfram. Óski farþegar eftir sérstökum sætum eða vilja kaupa uppfærslu er reynt að koma á móts við þær óskir, gegn þeim kostnaði sem það kostar en ekki hægt að lofa því 100%.
     
    GREIÐSLUMÁTI
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
     
    Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
    Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
     
    Ábending til ferðalanga til Bretlands:
    ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.
    Hér er allt um þetta: www.visitor.is/etaesta
     

Hótellýsing

Novotel Liverpool Paddington Village – Nútímalegt hótel með stórkostlegu útsýni yfir Liverpool.
 
Novotel Liverpool Paddington Village er nútímalegt 4 stjörnu hótel sem sameinar stílhreina hönnun, fyrsta flokks þægindi og einstaka staðsetningu í stuttri göngufjarlægð frá miðbænum.
Hótelið býður upp á rúmgóð og fallega innréttuð herbergi með öllum helstu þægindum sem tryggja afslappaða dvöl. Gestir geta notið bragðgóðs morgunverðar, fengið sér drykk á glæsilegum barnum eða slakað á eftir viðburðaríkan dag í notalegu umhverfi. 
Staðsetningin er tilvalin fyrir þá sem vilja upplifa það besta sem borgin hefur upp á að bjóða. Verslanir, veitingastaðir, menningarlíf, tónleikastaðir og vinsælir áfangastaðir á borð við Albert Dock og Anfield eru í stuttri fjarlægð.
Hvort sem ferðin er farin til að njóta borgarlífsins, heimsækja fótboltann eða í viðskiptaerindum er Novotel Liverpool Paddington Village frábær kostur fyrir þá sem vilja sameina þægindi, gæði og framúrskarandi staðsetningu.

Fararstjóri á vegum Visitor

Frá 249.900 ISK