Myndasafn
Ferðaáætlun
- Liverpool vs Newcastle - UPPSELTFerðin er frá föstudeginum 9. apríl til mánudagsins 12. apríl 2027.Óstaðfestur leikdagur er laugardaginn 10. apríl 2027.Enska knattspyrnusambandið setur alla leiki á laugardaga en staðfestir leikdaginn c.a. 7 vikum fyrir leikdag og þá geta leikir færst milli daga.Innifalið í pakkaferðinni:- Flug með ICELANDAIR ásamt sköttum.- 23 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur.- Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli.- Miði á leikinn.- Akstur til og frá flugvelli.- Íslensk fararstjórn.SÆTIN Á ANFIELDSætin okkar eru í nýju stúkunni, Anfield Road Stand, sem eru merkt dökk fjólublátt á myndinni hér fyrir ofan.Þeir farþegar okkar sem hafa verið þarna tala vel um sætin, útsýnið og stemninguna enda splunkuný stúka.
Þeir sem óska eftir uppfærslu á miðum í dýrara svæði skulu hafa samband við Visitor ferðaskrifstofu í síma 578 9888 eða á netfangið fyrirspurn@visitor.is.
Uppfærslur eru háðar framboði og ekki alltaf í boði.Reynt er eftir fremsta megni að fólk sitji saman. Tveir eða fjórir saman er oftast lítið mál, þrír eða fimm saman getur reynst erfitt og því er aldrei lofað 100% fyrirfram. Þurfi að slíta fólk í sundur er þó alltaf reynt að koma fólki í sama hólf með sama inngang en því er þó ekki hægt að lofa fyrirfram. Óski farþegar eftir sérstökum sætum eða vilja kaupa uppfærslu er reynt að koma á móts við þær óskir, gegn þeim kostnaði sem það kostar en ekki hægt að lofa því 100%.GREIÐSLUMÁTIHægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.Ábending til ferðalanga til Bretlands:ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.Hér er allt um þetta: www.visitor.is/etaesta
Hótellýsing
Novotel Liverpool Paddington Village – Nútímalegt hótel með stórkostlegu útsýni yfir Liverpool.
Novotel Liverpool Paddington Village er nútímalegt 4 stjörnu hótel sem sameinar stílhreina hönnun, fyrsta flokks þægindi og einstaka staðsetningu í stuttri göngufjarlægð frá miðbænum.
Hótelið býður upp á rúmgóð og fallega innréttuð herbergi með öllum helstu þægindum sem tryggja afslappaða dvöl. Gestir geta notið bragðgóðs morgunverðar, fengið sér drykk á glæsilegum barnum eða slakað á eftir viðburðaríkan dag í notalegu umhverfi.
Staðsetningin er tilvalin fyrir þá sem vilja upplifa það besta sem borgin hefur upp á að bjóða. Verslanir, veitingastaðir, menningarlíf, tónleikastaðir og vinsælir áfangastaðir á borð við Albert Dock og Anfield eru í stuttri fjarlægð.
Hvort sem ferðin er farin til að njóta borgarlífsins, heimsækja fótboltann eða í viðskiptaerindum er Novotel Liverpool Paddington Village frábær kostur fyrir þá sem vilja sameina þægindi, gæði og framúrskarandi staðsetningu.
Fararstjóri
GUÐRÚN ST. SVAVARSDÓTTIR
Guðrún St. Svavarsdóttir er reynslumikill og þjónustulundaður fararstjóri sem leggur mikla áherslu á persónulega þjónustu og góða upplifun ferðalanga. Hún er skipulögð, jákvæð og lausnamiðuð og sér til þess að hver ferð gangi hnökralaust fyrir sig. Með Guðrúnu í fararstjórn eru þátttakendur í öruggum höndum og geta notið ferðarinnar til fulls.
Guðrún St. Svavarsdóttir er reynslumikill og þjónustulundaður fararstjóri sem leggur mikla áherslu á persónulega þjónustu og góða upplifun ferðalanga. Hún er skipulögð, jákvæð og lausnamiðuð og sér til þess að hver ferð gangi hnökralaust fyrir sig. Með Guðrúnu í fararstjórn eru þátttakendur í öruggum höndum og geta notið ferðarinnar til fulls.