Myndasafn
Ferðaáætlun
- Mamma Mia - The Party! - Febrúar 2027Ferðin er frá fimmtudeginum 25.febrúar til sunnudagsins 28.febrúar 2027Verð frá kr. 209.900 á mann miðað við tvo saman í herbergi.- aukagjald vegna einbýlis kr. 51.900.
Sannkölluð stuðferð fyrir hjón, vini eða vinahópa sem vilja sleppa sér í gleði, glens, söng, mat og góðum félagsskap í London.Mamma Mia the party fer fram föstudagskvöldið 26. febrúar 2027Þetta er 4-5 tíma veisla.Matur og show þar sem þjónar og söngvarar syngja upp um alla veggi og dansa uppá borðum.Þér líður eins og þú sért komin inn í bíómyndina sjálfa.
Mamma Mia The Party! - BorðasvæðiBorðin sem við fáum á sýningunni eru á frábærum stað.
Erum á svæðinu sem heitir The Courtyard á myndinni hér fyrir ofan.Flugið:Icelandair - Heathrow.25. febrúar . Kl 07:35. Lent í London kl. 10:50.28.febrúar Kl 12:15. Lent í KEF kl. 15:30.Innifalið í ferðinni:- Flug með Icelandair og innritaðri 23 kg tösku.
- Handfarangur skv skilmálum Icelandair.
- Gisting í 3 nætur með morgunverði.
- Miði á sýninguna ásamt fjögurra rétta máltíð.
- Rúta til og frá sýningunni.
- Akstur til og frá flugvelli.
- Íslensk fararstjórn.
Athugið að þessi ferð er ætluð fyrir 16 ára og eldri.
Hótellýsing
Thistle London Marble Arch hótelið er staðsett á besta stað í miðbæ London ef þú vilt upplifa það besta sem borgin hefur uppá að bjóða. Afskaplega snyrtilegt og nútímalegt hótel nálægt Marble Arch lestarstöðinni.
Staðsett aðeins steinsnar frá helstu verslunargötunum, eins og Oxford Street, Regent St og Mayfair, auk fjölda frægra kennileita í London, þar á meðal Harrods, Hyde Park og Buckingham Palace, eða West End Theatre District.
Eftir annasaman dag má njóta máltíðar og kokteils með vinum á barnum með útsýni yfir Oxford Street.
TripAdvisor Travaller's Choice Award 2023.
GOTT AÐ VITA:
Á hótelum eru almennt tveggja manna herbergi: Double (hjónarúm), Twin (tvö aðskilin eins manns rúm). Sum hótel bjóða uppá þriggja manna herbergi sem eru herbergi með hjónarúmi og auka bedda. Þriggja manna herbergi eru eingöngu ætluð fyrir tvo fullorðna sem sofa í sama rúmi og gest yngri en 14 ára sem sefur á beddanum. Þriggja manna herbergi eru alls ekki fyrir 3 fullorðna.
Mamma Mia The Party! - Borðasvæði
Borðin sem við fáum á sýningunni eru á frábærum stað. Erum á svæðinu sem er gul-merkt á þessari mynd.
Greiðslumáti ferðar
Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni. Við bjóðum einnig Netgiró og PEI. Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu. Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.
Ábending til ferðalanga til Bretlands:
ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.
Hér er allt um þetta: https://www.visitor.is/etaesta/
Fararstjóri
Guðrún St. Svavarsdóttir
Með í ferðinni er fararstjóri frá Visitor sem innritar farþega á hótel, dreifir miðum á leikinn/tónleikana og er farþegum innan handar með allt sem þarf.