Man United - Aston Villa 12. - 16. mars 2026

Frá189.900 ISK
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • Man United - Aston Villa
    Flugið:
     
    Keflavik - Manchester 12. mars. Kl.12:30. Lent í Manchester kl.15:15
    Manchester - Keflavik 16. mars. kl. 08:35 - lent í Keflavik  11:50
     
    Innifalið í ferðinni:
    • Flug með Jet2 til og frá Keflavik
    • Innrituð 22 kg töska.
    • Handfarangur skv skilmálum Jet2
    • Gisting í 3 nætur með morgunverði.
    • Miði á Man. United - Aston Villa
    • Rúta til og frá flugvelli erlendis
    • Íslensk fararstjórn.

Hótellýsing

Holiday Inn Manchester City Center er fjögurra stjörnu hótel á besta stað í miðbæ Manchester borgar.
 
Flott herbergi, skemmtilegur bar/matsölustaður og vinalegt starfsfólk.
 
Innan við tvær mínútur að rölta í aðal verslunargötu borgarinnar og flestir vinsælustu veitingastaðir borgarinnar eru í göngufæri.
 
GOTT AÐ VITA:
Á hótelum eru almennt tveggja manna herbergi: Double (hjónarúm), Twin (tvö aðskilin eins manns rúm). Sum hótel bjóða uppá þriggja manna herbergi sem eru herbergi með hjónarúmi og auka bedda. Þriggja manna herbergi eru eingöngu ætluð fyrir tvo fullorðna sem sofa í sama rúmi og gest yngri en 14 ára sem sefur á beddanum. Þriggja manna herbergi eru alls ekki fyrir 3 fullorðna.
 
Old Trafford - sæti Visitor
 
Sætin okkar eru á neðri svæðum á góðum stað í South eða North (Sir Alex Ferguson Stand). Ekki er hægt að lofa nákvæmri staðsetningu sæta fyrirfram.
Reynt er eftir fremsta megni að fólk sitji saman. Tveir eða fjórir saman er yfirleitt lítið mál, þrír eða fimm saman (eða fleiri) getur verið erfitt og því er aldrei lofað fyrirfram. Þurfi að slíta fólk í sundur er þó alltaf reynt að koma fólki í sama hólf með sama inngang en því er þó ekki hægt að lofa fyrirfram. Óski farþegar eftir sérstökum sætum eða vilja kaupa uppfærslu er reynt að koma á móts við þær óskir, gegn þeim kostnaði sem það kostar en ekki hægt að lofa því 100%.
 
ÁRÍÐANDI - NÝTT MIÐAKERFI
Nýtt miðakerfi hefur verið tekið upp á Old Trafford.
Það virkar þannig að QR kóði aðgöngumiðans er sendur út 3 tímum fyrir kick off.
Miðahafar okkar þurfa að sýna því skilning og þolinmæði.
 

Greiðslumáti ferðar

Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
Fyrir slíkar greiðslur þarf að hringja í síma 578 9888
á milli 09-16 virka daga og ganga frá greiðslu.

Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

Ábending til ferðalanga til Bretlands:
ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.
Hér er allt um þetta: www.visitor.is/eta

 

 
 

Fararstjóri

Guðsteinn Halldórsson

Aldrei kallaður annað en Gussi the Great. Mikil aðdáandi enska boltans og hefur tekið að sér fararstjórn hjá Visitor síðustu ár með fótbolta- og tónleikahópferðir ásamt árshátíðarhópum.

Frá 189.900 ISK
Skoða flug og hótel