Man. Utd - Brentford 27. - 30. nóvember UPPSELT BIÐLISTI

Verð frá119.900 ISK
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • MANCHESTER UNITED vs BRENTFORD
    !! AÐEINS FLUG OG MIÐI Á LEIKINN  !!

    Flugið er föstudaginn 27.nóvember til mánudagsins 30.nóvember 2026
    Staðfestur leikdagur er laugardaginn 28. nóvember 2026.
     
    INNIFALIÐ
    - Flug með ICELANDAIR ásamt sköttum.
    - 23 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur
    - Miði á leikinn.

    EKKI INNIFALIÐ
    - Gisting
    - Akstur til og frá flugvelli.
    - Íslensk fararstjórn.

    VERÐ
    Flug og miði kostar kr. 119.900 á mann.
     
    Sætin okkar eru á neðri svæðum á góðum stað í South eða North Stand. 
    Á myndinni hér fyrir ofan höfum við dregið hring í kringum svæðið sem við erum með okkar miða.
    Ekki er hægt að lofa nákvæmri staðsetningu sæta fyrirfram.
     
    Reynt er eftir fremsta megni að fólk sitji saman. Tveir eða fjórir saman er yfirleitt lítið mál, þrír eða fimm saman (eða fleiri) getur verið erfitt og því er aldrei lofað fyrirfram. Þurfi að slíta fólk í sundur er þó alltaf reynt að koma fólki í sama hólf með sama inngang en því er þó ekki hægt að lofa fyrirfram. Óski farþegar eftir sérstökum sætum eða vilja kaupa uppfærslu er reynt að koma á móts við þær óskir, gegn þeim kostnaði sem það kostar en ekki hægt að lofa því 100%.
     
    Ábending til ferðalanga til Bretlands:
    ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.
    Hér er allt um þetta: https://www.visitor.is/etaesta/

     

Hótellýsing

Í þessum pakka er gisting ekki innifalin.
Verðdæmi 119.900 ISK