Rod Stewart The Final Encore - 5. - 8. maí 2027

Verð frá249.900 ISK
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • Rod Stewart The Last Encore
    ROD STEWART – THE LAST ENCORE
     
    Allra síðasti séns að sjá goðsögnina LIVE!
     
    Sumir tónlistarmenn eiga vinsæl lög. Aðrir eiga heilu kynslóðirnar.
    Sir Rod Stewart er einn þeirra.
    Í meira en hálfa öld hefur þessi einstaka rödd fylgt okkur í gegnum lífið. Í útvarpinu, á dansgólfinu, í partíunum, í bílnum – og í minningunum. Maggie May, Sailing, Baby Jane, Da Ya Think I’m Sexy?, Forever Young, Tonight’s the Night og You’re in My Heart eru aðeins brot af þeim ótal lögum sem hafa gert Rod Stewart að einum ástsælasta tónlistarmanni heims.
     
    Nú er komið að The Last Encore – og þetta er tækifærið sem Rod Stewart aðdáendur vilja ekki láta fram hjá sér fara.
     
    Allra síðasti séns að sjá Rod Stewart LIVE.
     
    Visitor býður í einstaka 3 nátta hópferð til Manchester 5.–8. maí 2027, þar sem við ætlum að njóta borgarinnar og upplifa eitt af þessum kvöldum sem maður gleymir einfaldlega ekki.
     
    Rod Stewart hefur selt yfir 250 milljónir platna og smáskífa, átt stórsmelli á hverjum áratugnum á fætur öðrum og staðið á stærstu tónleikasviðum heims. Ferill hans spannar meira en hálfa öld og fáir listamenn geta státað af jafn mörgum lögum sem hafa orðið hluti af hljóðheim í huga milljóna manna.
    Þegar fyrstu tónarnir hljóma í Manchester verður því ekki bara um venjulega tónleika að ræða. Þetta verður kvöld til að syngja með, rifja upp góðar minningar og njóta þess að sjá eina af stærstu goðsögnum tónlistarsögunnar á sviði í síðasta sinn.
     
    Frábær helgi í Manchester
     
    Gist verður í 3 nætur á Holiday Inn Manchester City Centre, frábærlega staðsettu hóteli í hjarta borgarinnar.
    Manchester er ein skemmtilegasta borg Bretlands fyrir langa helgi. Þar er frábært úrval verslana, veitingastaða og pöbba, líflegt mannlíf og stutt í allt það helsta. Það verður því nóg svigrúm til að njóta borgarinnar fyrir og eftir stóra kvöldið.

    Rod Stewart – The Last Encore. Manchester. Maí 2027.
    Þetta er meira en tónleikaferð.
    Þetta er ferð niður minningabrautina með einni þekktustu rödd tónlistarsögunnar.
    Síðasti séns. Síðasta encore. Síðasta tækifærið til að segja: „Ég sá Rod Stewart LIVE.“

    MIÐARNIR
    Sætin okkar eru á allra besta stað í CO-OP LIVE nýju tónleikahöllinni Manchester, sem er talin ein sú allra flottasta í Evrópu í dag. Sætin eru í AMP Hospitality, svæði 219. Sjá bleikt svæði á myndinni hér fyrir ofan.

    FLUGIÐ
    Icelandair - Manchester
    5. maí 2027. Kl. 08.00. Lent í MAN kl. 11:40.
    8 maí 2027. Kl. 13:05. Lent í KEF kl. 14:50.

    Innifalið í ferðinni:
    Flug með Icelandair og 23kg tösku.
    Handfarangur skv. skilmálum Icelandair.
    Gisting í 3 nætur með morgunverði.
    Hospitality miðar á Rod Stewart tónleikana.
    Fordrykkur í boði Visitor á hótelbarnum fyrir tónleika.
    Akstur til og frá flugvelli.
    Íslensk fararstjórn.
     
    Greiðslumáti
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald,
    kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
    Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
    Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför og hafa farþegar þá viku til að greiða.
     

Hótellýsing

Holiday Inn Manchester City Center er fjögurra stjörnu hótel á besta stað í miðbæ Manchester borgar.
Staðsetningin gerist vart betri – stutt er í helstu verslunargötur borgarinnar, veitingastaði, bari og allt það líf og fjör sem Manchester hefur upp á að bjóða.
 
Herbergin eru nútímaleg og þægileg og hótelið býður upp á veitingastað og bar þar sem tilvalið er að hittast yfir drykk fyrir eða eftir kvöldið.
 
Hótelið er í göngufæri við Piccadilly Gardens, Northern Quarter, Arndale-verslunarmiðstöðina og Market Street, þannig að bíllinn eða leigubíllinn er óþarfur þegar halda á í verslun, út að borða eða njóta miðborgarinnar.
 
Eitt af okkar uppáhaldshótelum í Manchester – frábær staðsetning, góð herbergi og fullkomin bækistöð fyrir helgarferðina.
 
GOTT AÐ VITA:
Á hótelum eru almennt tveggja manna herbergi: Double (hjónarúm), Twin (tvö aðskilin eins manns rúm). Sum hótel bjóða uppá þriggja manna herbergi sem eru herbergi með hjónarúmi og auka bedda. Þriggja manna herbergi eru eingöngu ætluð fyrir 

Fararstjóri

SIGGI HLÖ

Fararstjóri hópsins verður Siggi Hlö, fyrrverandi útvarpsmaður og mikill tónlistaráhugamaður, sem hefur lifað og hrærst í tónlist og skemmtanabransanum í áratugi.

Siggi sér til þess að ferðin verði ekki bara tónleikaferð heldur alvöru upplifun – með góðri stemningu, tónlistarsögum og hæfilegu stuði frá því lagt er af stað.

Og hver veit nema nokkrir Rod Stewart-smellir fái að hljóma áður en stóra stundin rennur upp!

Verðdæmi 249.900 ISK