Myndasafn
Ferðaáætlun
- 1Kvennaferð til Sitges með VilmuVilma mun fara með góðan hóp kvenna til Sitges ásamt Halldóru frá Kvennheilsu og Guðrúnu frá Visitor Ferðaskrifstofu.Vilmla hefur alltaf haft mikla ástríðu fyrir vellíðan og því að konur gefi sér tíma fyrir sjálfan sig. Við erum oft svo uppteknar við að hugsa um alla í kringum okkur að við gleymum oft okkur sjálfum. En við megum taka pláss, við megum njóta og við eigum skilið að fylla vel á tankinn okkar fyrir næsta ár.Að njóta sólar og hita, hlaða batteríin, kynnast nýjum konum, hlæja, slaka á og koma heim með fullan tank af orku og fallegum minningum.Stundum þurfum við bara að stíga út úr amstrinu, anda aðeins dýpra og gefa okkur tíma fyrir okkur sjálfar.Ferðin er hugsuð fyrir konur á öllum aldri. Hvermig væri að taka vinkonu, mömmu eða jafnvel saumaklúbbinn í dásemdar ferð til Sitges.Þetta er einstök 5 nátta ferð til Sitges þar sem markmiðið er einfalt, hlaða batteríin, slaka á og koma heim endurnærð, ásamt því að kynnast frábærum hóp af konum.Þetta er ferð fyrir konur sem vilja eiga notalegar stundir með öðrum konum, spegla sig í reynslu annarra og skapa ný tengsl í hlýju og afslöppuðu umhverfi.Með okkur verður Halldóra frá Kvennaráði sem mun leiða einlægt spjall um lífið, breytingaskeið kvenna, hormónakerfið og hvernig við getum betur hlúð að okkur sjálfum. Engin fullkomnun, bara hreinskilið spjall sem flestar konur geta tengt við.Við eigum svo okkar sérstaka Day of Fun þar sem þær sem farið verður í vínsmökkun og mat.Við munum taka á móti ykkur með fallegu goody bag og skálum saman til að fagna ferðinni og mynda góðan hóp.Takmarkað sætaframboð.Flogið er með Icelandair til Barcelona18. september brottför frá Keflavík kl 08:25 lending kl 14:4523. september brottför frá Barcelona kl 15:45 lending kl 18:25Fyrsta daginn hittumst við á ströndinni þar sem við byrjum ferðina á léttum yogaæfingum, teygjum og rólegri stund saman, þar sem hópurinn kynnist og farið verður yfir dagskrá ferðarinnar.DAGSKRÁ - birt með fyrirvara um breytingar.Föstudagur - komu dagurFlug, akstur á hótelið.hópurinn kemur sér fyrir. Við hittumst svo og forum á ströndina og eigum góða stund þar sem hópurinn kynnist og farið verður yfir dagskrá næstu daga.LaugardagurByrjum daginn á fyrirlestri með Halldóru og góðu spjalli.seinnipartinn forum við saman í göngutúr í gamlabæinn.Sunnudagurbyrjum daginn á léttri göngu meðfram ströndinni ásamt teyjum.vínsmökkun og léttur kvöldverður ( greitt aukalega )Mánudagurfrjáls dagurÞriðjudagurFyrirlestur frá Halldóru ásamt yoga æfingum.MiðvikudagurByrjum daginn á teygjum og samveru í hotel garðinumHeimferð um hádegiVerð frá kr. 298.900 á mann miðað við tvo saman í herbergi.- aukagjald vegna einbýlis kr. 109.900.Lágmarksþátttaka er 15 manns og áskilur Visitor sér rétt til að fella niður ferðina náist ekki sú þátttaka.hámarksþáttaka í ferðinni er 20 manns.GreiðslumátiHægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni. Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.Innifalið:Flug með IcelandairGisting í 5 nætur með morgunverðiYoga og slökun á ströndinniFræðsla og spjall með Halldóru frá KvennaráðiGoody bagFreyðivín fyrsta kvöldiðFararstjóri Visitor verður með hópnum ásamt Vilmu,Ekki innifalið:vínsmökkun og matursameiginlegur kvöldverðurannað sem kemur ekki fram undir innifaliðcity taxÞetta er ekki bara ferð. Þetta er gjöf til sjálfrar þín.
Hótellýsing
Gist er á Sabàtic Hotel Sitges
Hótelið sameinar nútímalega hönnun, þægindi og afslappað andrúmsloft sem einkennir miðjarðarhafssvæðið. Hótelið býður uppá rúmgóð herbergi með svölum.
Á hótelinu er veitingastaður sem býður upp á ferska miðjarðarhafsmatargerð úr staðbundnu hráefni, ásamt glæsilegum bar og útisvæðum þar sem gestir geta notið sólarinnar og útsýnisins. Einnig er þar sundlaug, líkamsræktaraðstaða og fjölbreytt vellíðunar- og heilsutengd þjónusta, svo sem jóga og Pilates.
Sabàtic Hotel Sitges er kjörinn kostur fyrir þá sem vilja slaka á í fallegu umhverfi, njóta menningar og strandlífs Sitges og upplifa einstaka blöndu af lúxus, þægindum og afslöppun. Hótelið er staðsett nálægt bæði ströndinni og gamla bænum.
https://www.marriott.com/en-us/hotels/bcnks-sabatic-sitges-autograph-collection/overview
Fararstjórar
Fararstjórar ferðarinnar eru Vilma Ýr Árnadóttir eigandi Vilma-Home, ásamt Guðrúnu St. Svavarsdóttur.
Vilma Ýr Árnadóttir er eigandi Vilma Home hún heldur úti vinsælum samfélagsmiðli þar sem hún deilir lífinu eins og það er – með húmor og hreinskilni. Hún hefur byggt upp einstakt samfélag kvenna sem fylgja henni þar sem hún er óhrædd við að vera hún sjálf og hvetur aðrar konur til að fylgja innsæginu sínu og draumum.
Guðrún er Yin yoga og spinningkennari ásamt því að vera yfirmaður hópa-, íþrótta- og endurmenntunarferða hjá Visitor Ferðaskrifstofu.
Halldóra Skúladóttir verður með okkur og mun hún sjá um að fræða hópinn um kvennheilsu.
Halldóra er sérfræðingur í kvenheilsu og hefur um árabil unnið við að leiðbeina konum að betri líðan bæði andlega og líkamlega