Liverpool - Chealsea 8. - 11. maí 2026

Frá279.900 ISK
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • Vinsæl ferð
    LIVERPOOL VS CHELSEA
    Ferðin er frá föstudeginum 8. maí til mánudagsins 11. maí 2026.
     
    Óstaðfestur leikdagur er laugardaginn 9. maí 2025.
    Enska knattspyrnusambandi staðfestir leikdaginn c.a. 7 vikum fyrir leikdag og þá geta leikir færst milli daga.
     
    Ábending til ferðalanga til Bretlands:
    ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.
    Hér er allt um þetta: www.visitor.is/eta
     
    Innifalið í pakkaferðinni:
    • Flug með ICELANDAIR ásamt sköttum.
    • 23 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur.
    • Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli.
    • Miði á leikinn.
    • Akstur til og frá flugvelli.
    • Íslensk fararstjórn.
    •  
    Anfield sæti - Visitor
    Sætin okkar á þessum leik eru í nýju stúkunni, Anfield Road Stand, sem eru merkt dökk fjólublá á þessari mynd (Price Category D).
    Þeir farþegar okkar sem hafa verið þarna tala vel um sætin, útsýnið og stemninguna enda splunkuný stúka.
    Af og til fáum við uppfærslu í sæti í Main Stand í svæði L1 eða L10 (Price Category A).
     
    Reynt er eftir fremsta megni að fólk sitji saman. Tveir eða fjórir saman er oftast lítið mál, þrír eða fimm saman getur reynst erfitt og því er aldrei lofað 100% fyrirfram. Þurfi að slíta fólk í sundur er þó alltaf reynt að koma fólki í sama hólf með sama inngang en því er þó ekki hægt að lofa fyrirfram. Óski farþegar eftir sérstökum sætum eða vilja kaupa uppfærslu er reynt að koma á móts við þær óskir, gegn þeim kostnaði sem það kostar en ekki hægt að lofa því 100%.
     
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvél okkar hér til vinstri.
     
    Einnig er hægt að greiða með Netgíró.
    Netgíró þarf að hringja í síma 578 9888 á milli 09-16 virka daga.

Hótellýsing

Leonardo Hotel Liverpool
 
Gist er á glæsilegu og vel staðsettu Leonardo Hotel Liverpool sem er 4 stjörnu hótel og er beint á móti Echo Arena tónleikahöllinni. Frá hótelinu er stutt yfir á hafnarsvæðið "Albert Docks" þar sem finna má marga góða veitingarstaði, fjölbreytta pöbba, söfn og verslanir. Frá hótelinu er 10 mínútna rölt að Central lestastöðinni.
 
Morgunverður er innifalinn.
 
Björt, nútímaleg svefnherbergi með góðum rúmum, stórum flatskjásjónvörpum og rúmgóðu baðherbergi ásamt te- og kaffiaðstöðu.
Ókeypis Wi-Fi aðgangur og morgunverðarhlaðborð innifalið.
 
GOTT AÐ VITA:
Á hótelum eru almennt tveggja manna herbergi:
Double (hjónarúm), Twin (tvö aðskilin eins manns rúm).
Sum hótel bjóða uppá þriggja manna herbergi sem eru herbergi með hjónarúmi og auka bedda. Þriggja manna herbergi eru eingöngu ætluð fyrir tvo fullorðna sem sofa í sama rúmi og gest yngri en 14 ára sem sefur á beddanum.
Þriggja manna herbergi á Leonardo Liverpool eru alls ekki fyrir 3 fullorðna.
 
Leonardo Hotel Liverpool
31 Keel Wharf, Liverpool, L3 4FN
Tel: +44 151 244 3777

Fararstjóri

Guðrún St. Svavarsdóttir
Yfirmaður hópa-, íþrótta- og endurmenntunarferða.
Frá 279.900 ISK