Liverpool - Fulham 10. - 13. april 2026 UPPSELT

Frá225.900 ISK
Yfirlit

Ferðaáætlun

  • !! UPPSELT !!
    LIVERPOOL VS FULHAM
    Ferðin er frá föstudeginum 10. apríl til mánudagsins 13. apríl 2026.
     
    Leikurinn fer fram laugardaginn 11. apríl 2026.

    INNIFALIÐ Í PAKKAFERÐINNI:
    Flug með ICELANDAIR ásamt sköttum.
    23 kg. innritaður farangur og lítill handfarangur.
    Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli.
    Miði á leikinn.
    Akstur til og frá flugvelli.
    Íslensk fararstjórn.

    SÆTIN Á ANFIELD
    Sætin okkar eru í nýju stúkunni, Anfield Road Stand, sem eru merkt dökk fjólublátt á myndinni hér fyrir ofan.
    Þeir farþegar okkar sem hafa verið þarna tala vel um sætin, útsýnið og stemninguna enda splunkuný stúka.
    Af og til fáum við uppfærslu í sæti í Main Stand í svæði L1 eða L10.
     
    Reynt er eftir fremsta megni að fólk sitji saman. Tveir eða fjórir saman er oftast lítið mál, þrír eða fimm saman getur reynst erfitt og því er aldrei lofað 100% fyrirfram. Þurfi að slíta fólk í sundur er þó alltaf reynt að koma fólki í sama hólf með sama inngang en því er þó ekki hægt að lofa fyrirfram. Óski farþegar eftir sérstökum sætum eða vilja kaupa uppfærslu er reynt að koma á móts við þær óskir, gegn þeim kostnaði sem það kostar en ekki hægt að lofa því 100%.

    GREIÐSLUMÁTI
    Hægt er að tryggja sér sæti í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 40.000 per farþega í bókunarvélinni.
     
    Við bjóðum einnig Netgiró og PEI.
    Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför.

    Ábending til ferðalanga til Bretlands:
    ALLIR þurfa að vera með ETA rafræna ferðaheimild til UK, líka þeir sem fara í tengiflugi um Bretland.
    Hér er allt um þetta: https://www.visitor.is/etaesta/

     

Hótellýsing

Leonardo Hotel Liverpool
 
Gist er á glæsilegu og vel staðsettu Leonardo Hotel Liverpool sem er 4 stjörnu hótel og er beint á móti Echo Arena tónleikahöllinni. Frá hótelinu er stutt yfir á hafnarsvæðið "Albert Docks" þar sem finna má marga góða veitingarstaði, fjölbreytta pöbba, söfn og verslanir. Frá hótelinu er 10 mínútna rölt að Central lestastöðinni.
 
Björt, nútímaleg svefnherbergi með góðum rúmum, stórum flatskjásjónvörpum og rúmgóðu baðherbergi ásamt te- og kaffiaðstöðu.
Ókeypis Wi-Fi aðgangur og morgunverðarhlaðborð innifalið.
 
GOTT AÐ VITA:
Á hótelum eru almennt tveggja manna herbergi:
Double (hjónarúm), Twin (tvö aðskilin eins manns rúm).
Sum hótel bjóða uppá þriggja manna herbergi sem eru herbergi með hjónarúmi og auka bedda.
Þriggja manna herbergi eru eingöngu ætluð fyrir tvo fullorðna sem sofa í sama rúmi og gest yngri en 14 ára sem sefur á beddanum.
Þriggja manna herbergi á Leonardo Liverpool eru alls ekki fyrir 3 fullorðna.

Leonardo Hotel Liverpool
31 Keel Wharf, Liverpool, L3 4FN
Tel: +44 151 244 3777

 

Fararstjóri

Fararstjóri á vegum Visitor
Frá 225.900 ISK