Spánn er einn vinsælasti áfangastaður Evrópu fyrir fótboltaæfingaferðir. Þar sameinast frábær æfingaaðstaða, gott veður og fjölbreyttir möguleikar fyrir lið sem vilja undirbúa tímabilið við bestu mögulegu aðstæður.
 
Við bjóðum upp á æfingaferðir á nokkrum af vinsælustu íþróttasvæðum landsins, meðal annars í Lloret de Mar, Salou, á Tenerife og á Málaga. Á öllum þessum stöðum er að finna góða æfingavelli, þægilega gistingu og frábæra aðstöðu fyrir fótboltalið.
 
Við leggjum áherslu á að sníða hverja ferð að þörfum hópsins. Hvort sem liðið er að undirbúa tímabilið, fara í æfingabúðir eða styrkja liðsandann, setjum við saman ferð sem hentar ykkur sem best.
 
Dæmi um það sem er innifalið í ferðinni:
 
Flug fram og til baka
Flugvallarakstur, til og frá flugvelli
Móttaka við komu á flugvelli
Gisting í 7 nætur
Fullt fæði – morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Æfingar
Æfingaleikir gegn öðrum liðum
Vatn á æfingum
Aðstoð frá enskumælandi fulltrúa á staðnum
Fyrirspurn um æfinga- og keppnisferð