COSTA BLANCA CUP 2027 – FÓTBOLTI UNDIR SPÆNSKU SÓLINNI! 
 
Hvernig hljómar að sameina alþjóðlegt fótboltamót, sól og geggjaða ferð til Spánar? 
 
Costa Blanca Cup 2027 er skemmtilegt alþjóðlegt fótboltamót á stór-Benidorm svæðinu þar sem liðið fær tækifæri til að mæta erlendum mótherjum, styrkja liðsheildina og skapa ógleymanlegar minningar saman.
 
Mótið fer fram í Altea, Benidorm, Benissa, Calpe, La Nucia og La Vila Joiosa
Spilað er bæði á grasi og gervigrasi
4–5 lið í hverjum riðli
A- og B-úrslit
Lágmark 4 leikir á hvert lið
Aldursflokkar: B19, B17, B16, B15, B14, B13, B12, G16 og G14
 
 Alþjóðlegir mótherjar
 Sól, sumar og frábær stemning
 Sterkari liðsheild
 Upplifun sem nær langt út fyrir fótboltavöllinn
 
Gerið 2027 að ári sem liðið gleymir aldrei.
 
Mótsdagar
4. - 10. júlí
 
Ferðadaga
3. - 10. júlí 
 
Innifalið í ferð:
Flug til  og fra Alicante
Hótelgisting í 7 nætur
Fullt fæði
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Mótsgjald
 
Hægt er að bæta við aukalega til dæmis heimsókn í Terra Mitica, Aqualandia o.fl.
 
Fyrirspurnir sendist á sport@visitor.is

 

Fyrirspurn um æfinga- og keppnisferð