Langar liðið þitt í æfingaferð þar sem allt er á einum stað? Þá er Vildbjerg í Danmörku frábær kostur. Þar er að finna frábæra íþróttaaðstöðu sem hentar sérstaklega vel fyrir handboltalið sem vilja undirbúa tímabilið við faglegar aðstæður.
 
Í Vildbjerg Sports‑ og Kulturcenter er öflug íþróttamiðstöð með stórum íþróttahöllum, æfingaaðstöðu, líkamsrækt og góðri gistingu – allt á sama svæði. Þetta gerir liðum kleift að einbeita sér að æfingum, leikjum og hópefli án þess að þurfa að ferðast á milli staða.
 
Margir hópar frá Norðurlöndum og víðar velja Vildbjerg ár eftir ár fyrir æfingabúðir sínar vegna aðstöðunnar sem þar er í boði.
 
Dæmi um innifalið í ferð:
 
Flug fram og til baka
Flugvallarakstur í Danmörku, til og frá flugvelli
Gisting í 7 nætur
Fullt fæði – morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Aðgangur að handboltaaðstöðu og íþróttahöll
Æfingaleikir gegn öðrum liðum