Generation Handball – Handboltamót í Viborg
 
Generation Handball er stórt alþjóðlegt handboltamót sem haldið er árlega í Viborg í Danmörku. Mótið hefur verið mjög vinsælt meðal íslenskra liða og býður upp á öfluga keppni, strandhandbolta, sýningarleiki og fjölbreytta dagskrá fyrir þátttakendur.
 
Mótsdagar:
2.–7. ágúst 2027
 
Ferðadagar:
1.–8. ágúst 2027
 
Fyrirkomulag móts
 
4–5 lið í hverjum riðli
A- og B-úrslit
Að lágmarki 5–6 leikir á hvert lið
Úrslitaleikir fara fram föstudag og laugardag
Aldursflokkar: U13, U15, U17 og U20
Allir leikir U17 og eldri fara fram innanhúss
 
Mótssvæðið
 
Öll helsta dagskrá mótsins er á sama svæði. Þar eru meðal annars:
 
15 handboltavellir
3 strandhandboltavellir
Veitingasala
Afþreyingarsvæði
Diskótek
Sérstök aðstaða fyrir fararstjóra og þjálfara
 
Miðbær Viborgar er aðeins um 500 metra frá mótssvæðinu. Viborg er öruggur og skemmtilegur bær og því stutt í verslanir, veitingastaði og aðra þjónustu.
 
Gisti möguleikar
 
Medium
Skólagisting. Dýna, lak, koddi og ábreiða/sæng fylgir.
 
Large
Heimavist á „college“. Rúm eða koja með rúmfatnaði.
 
Oasen
Bed & Breakfast-gisting í samliggjandi húsum.
 
Hótel
Gisting á Palads Hotel, Hotel Peak 12 eða Best Western Hotel.
 
Innifalið:
 
Flug til og frá Billund
Flugvallaakstur
Gisting í 7 nætur
Fullt fæði á mótsdögum
Mótsgjald
Afþreying á mótssvæðinu
 
Fyrir nánari upplýsingar og fyrirspurnir: sport@visitor.is

 

Fyrirspurn um æfinga- og keppnisferð