Granollers Cup – Handboltamót á Spáni
Sól, strandlíf og handbolti
Granollers Cup er stórt alþjóðlegt handboltamót sem haldið er í Granollers, um 25 km frá Barcelona. Mótið er vinsælt meðal íslenskra liða og sameinar öfluga handboltakeppni og skemmtilega liðsferð á Barcelona-svæðinu.
Mótið er haldið af BM Granollers, einum þekktasta handboltaklúbbi Spánar.
Mótsdagar:
22.–26. júní 2027
Ferðadagar:
22.–29. júní 2027
Fyrirkomulag móts
Aldursflokkar fyrir bæði pilta og stúlkur
Að lágmarki 5 leikir á hvert lið
Leikir fara fram í Granollers og nágrenni
Akstur í leiki mótsins er innifalinn í ferðinni
Gisting
Gist er á hóteli í *Santa Susanna* í 7 nætur.
Fullt fæði er innifalið á mótsdögum og morgunverður þá daga sem ekki er keppt.
Santa Susanna er vinsæll strandbær við Miðjarðarhafið og hentar því vel til að sameina keppnisferð og frítíma við ströndina.
Innifalið:
Flug til og frá Barcelona
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Akstur í leiki á meðan mótinu stendur
Hótelgisting í 7 nætur í Santa Susanna
Fullt fæði á mótsdögum
Morgunverður á aukadögum
Liðsgjald á Granollers Cup
Hægt að bæta við ferðina
PortAventura* – dagsferð í einn stærsta skemmtigarð Spánar, um 1½ klst. akstur frá Santa Susanna
Barcelona* – dagsferð með möguleika á verslun, skoðunarferðum, menningu og fjölbreyttri afþreyingu
Fyrir nánari upplýsingar og fyrirspurnir: sport@visitor.is